Við lestur vefsvæðis TM Software skal hafa hliðsjón af þeim lagalega fyrirvara sem hér er fram settur.
Allar upplýsingar á vefsvæðinu eru byggðar á heimildum sem TM Software telur áreiðanlegar hverju sinni en þó er ekki hægt að ábyrgjast að þær séu réttar og án innsláttarvillna. TM Software er ekki skylt að uppfæra það sem fram kemur á vefsvæðinu og kunna upplýsingarnar að breytast án fyrirvara og sérstakrar tilkynningar þar um. TM Software ber hvorki ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vefsvæðinu né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefsvæðið, um skemmri eða lengri tíma.
Á vefsvæðinu eru einnig tengingar/tenglar við önnur vefsvæði. Slíkar tengingarnar fela ekki á nokkurn hátt í sér ábyrgð TM Software á efni viðkomandi vefsvæða.
TM Software á höfundarréttinn að öllum upplýsingum sem fram kom á vefsvæðinu nema annað sé tekið fram. Undanskilið er efni sem kemur beint frá samstarfsaðilum, s.s. skráð vörumerki sem vernduð eru skv. viðkomandi lögum hverju sinni. Skriflegt leyfi TM Software þarf til að afrita, dreifa og eða endurbirta upplýsingar sem fram koma á vefsvæði TM Software en leyfilegt er að vista efnið til einkanota.
Vefsvæði TM Software notar Google Analytics eða önnur sambærileg tól til mæla vefumferð, fá yfirsýn yfir heimsóknir og notkun á vefsvæðinu í þeim tilgangi að bæta aðgengi og efni vefsvæðisins. Til þessa eru notaðar svo kallaðar vefkökur (cookies) sem er komið fyrir í vafra notandans. Notendur geta í gegnum stjórnborð vafranna haft fulla stjórn yfir því hvort þeir samþykkja þessar vefkökur eður ei.
TM Software safnar ekki upplýsingum um notendur vefsvæðisins nema þær séu til þess fallnar að uppfylla óskir notenda á einhvern hátt en þá er það á fullkomlega á valdi notenda að gefa upp slíkar upplýsingar eður ei. TM Software miðlar ekki undir nokkrum kringumstæðum upplýsingum um notendur til þriðja aðila, nema notendur óski eftir því sjálfir.
