TM Software

Samþætting

Samþætting gengur út á að koma á samskiptum milli tveggja eða fleiri ólíkra upplýsingakerfa eða gagnagrunna í rauntíma. Með samþættingu má auka verðmæti þess hugbúnaðar og gagna sem fyrir eru hjá fyrirtækjum, einfalda ferla og skráningu upplýsinga, auk þess að auka áreiðanleika upplýsinga.

Aukinn fjöldi sértækra upplýsingakerfa hjá fyrirtækjum hefur haft vandamál í för með sér sem kallar á samþættingu kerfa og gagnagrunna, án þess að þörf sé á umfangsmiklum breytingum á kerfum sem tengja þarf saman.

Kröfur til samþættingar upplýsingakerfa eru í dag á meðal lykilatriða til að ná árangri í rekstri fyrirtækja og að auka virði gríðarlegs fjölda uppsafnaðra upplýsinga innan fyrirtækja.  Auk þess er mikilvægt að geta brugðist hratt við markaðstækifærum og að stytta framleiðslutíma lausna.

Sífellt stærri hluti verkefna okkar snúast um samþættingu og á því sviði höfum við umfangsmikla þekkingu og reynslu. Þeir þættir sem þarf meðal annars að greina og taka tillit til í samþættingu eru:

  • Núverandi upplýsingaumhverfi, vinnuaðferðir og viðskiptaferlar fyrirtækis
  • Mat á ávinningi við samþættingu upplýsingakerfa og sjálfvirkni viðskiptaferla
  • Ráðgjöf og þróun ferla
  • Uppsetning á samþættingarlausn
  • Áframhaldandi stuðningur og þjónusta

 

Tengdar vörur