
Vefsvæðið Karlmenn og krabbamein hefur vakið verðskuldaða athygli. Vefsvæðið er unnið af starfsmönnum TM Software og styrkir félagið herferðina.
Á vefnum er fræðsla til að greina fyrstu einkenni krabbameins í körlum. Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til sérstaks átaks um karlmenn og krabbamein hér á landi. Í tengslum við átakið efndi Krabbameinsfélagið til mottuáskorunar og hafa þegar um 630 manns skráð sig í einstaklingskeppnina og um 150 hópar í liðakeppina. Núþegar hafa safnast rúmar tvær milljónir og þrjúhundruð þúsund í áheitum og hækkar sú upphæð með hverri mínútunni sem líður.
Vefsvæðið er sett upp í vefumsjónarkerfinu WebMaster.