
Netverslun hefur aukist undanfarin ár „Undantekning var í fyrra, þegar mikill samdráttur í sölu á ferðatengdum vörum dró niður netverslun í heild“. Munur er á kauphegðun karla og kvenna.
Íslendingar nota netið í síauknum mæli til að kaupa vörur eða þjónustu. Samkvæmt rannsókn Hagstofu Íslands, sem gerð var í apríl í fyrra, pöntuðu eða keyptu 29 prósent íslenskra netnotenda vöru síðustu þrjá mánuði fyrir framkvæmd könnunarinnar.
Kom þetta fram á morgunverðarfundi TM Software um netverslun, sem haldinn var fyrir skömmu (sjá glærur hér).
Netverslun var meiri árið 2008 en 2009, en samdrátturinn hefur nær eingöngu orðið í ferðatengdum vörum. Íslendingar eru með öðrum orðum ekki að kaupa ferðir til útlanda á netinu í sama mæli og áður.
Um 57 prósent aðspurðra höfðu keypt aðgöngumiða á viðburði á netinu, 48 prósent höfðu keypt fjarskiptaþjónustu af einhverju tagi og 46 prósent höfðu keypt bækur og tímarit.
Nokkur munur er á kauphegðun kynjanna. Til dæmis höfðu 47 prósent karla keypt tónlist á netinu, en 27 prósent kvenna. Sama á við um hugbúnað og tölvuleiki, þar sem 47 prósent karla höfðu átt viðskipti með slíkt, en 19 prósent kvenna.
Konur kaupa aftur á móti frekar bækur og tímarit á netinu (33 prósent kvenna á móti 27 prósent karla).
Einnig er munur á kauphegðun þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og annarra Íslendinga hins vegar. Höfuðborgarbúar kaupa meira af bókum, tímaritum og hlutabréfum á netinu, en landsbyggðarfólk kaupir meira af hlutum til heimilisins, tölvuleiki og hugbúnað.
Athyglisvert er að innlend fyrirtæki eru lang-algengustu seljendurnir á netinu, en um 80 prósent aðspurðra höfðu keypt vöru eða þjónustu af íslensku fyrirtæki á netinu. Hlutfall þeirra sem keypt höfðu af evrópsku fyrirtæki var um 46 prósent og um 49 prósent höfðu keypt af bandarísku fyrirtæki. Þá sýnir könnunin að flestar pantanir, sem gerðar eru á netinu, eru fyrir tiltölulega lágar fjárhæðir. Aðeins um 19 prósent pantana eru fyrir meira en hundrað þúsund krónur og þar af er um helmingurinn fyrir pantanir yfir tvö hundruð þúsund krónum. Í 47 prósent tilfella var virði pöntunar undir tuttugu þúsund krónum.
Soffía Kristín Þórðardóttir, verkefnastjóri hjá TM Software, kynnti efni könnunarinnar á fundinum og fjallaði einnig um helstu mistök sem gerð eru við hönnun vefverslana.
Vefsíða má ekki vera of flókin og gera verður viðskiptavini eins auðvelt og unnt er að finna það sem hann vill á síðunni og fá upplýsingar um vöruna. Þetta þýðir að leitarvél á síðunni verður að vera öflug og nægilega ýtarlegar upplýsingar um vöruna verða að liggja fyrir með myndum af henni ef við á.
Þá má kaupferlið ekki vera of langt eða flókið og segir hún að ekki eigi að gera það að skilyrði fyrir kaupum að viðskiptavinur gerist skráður notandi að síðunni.