
Samtök vefiðnaðarins, SVEF, tilgreindu fyrr í vikunni þá vefi sem keppa í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna 2011. Alls náðu átta vefir viðskiptavina TM Software í úrslit.
Við óskum hlaupastyrkur.is, inspiredbyicelandi.is, icelandair.is/uppahaldsborg, m.icelandair.is, m.isb.is, postur.is, siminn.is og vib.is innilega til hamingu með tilnefningarnar og þennan frábæra árangur. Sérfræðingar TM Software hafa unnið að þróun þessara vefsvæða með fyrirtækjum og stofnunum sem standa að baki vefsvæðunum.
Hér að neðan má sjá í hvaða flokkum fyrrgreind vefsvæði keppa í og að hvaða leyti TM Software kom að þeim.
| Vefur | Flokkur | Verkefni |
| hlaupastyrkur.is | Besta markaðsherferðin | Viðmótsforritun, uppsetning og áheitakerfi |
| icelandair.is/uppahaldsborg | Besta markaðsherferðin | Viðmótsforritun og uppsetning, vefumsjónarkerfi, sérþróun í Java |
| inspiredbyiceland.is | Besta markaðsherferðin | Viðmótsforritun, uppsetning, vefumsjónarkerfi, sérþróun í Java fyrir VYRE Unify og Google App Engine |
| m.icelandair.is | Besti hand-smátækja vefurinn | Hönnun, viðmótsforritun, uppsetning, vefumsjónarkerfi |
| m.isb.is | Besti hand-smátækja vefurinn | Viðmótsforritun og uppsetning |
| postur.is | Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn & Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn | Sérþróun, vefumsjónarkerfi og uppsetning |
| siminn.is | Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn | Sérþróun í Java og vefumsjónarkerfi |
| vib.is | Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn | Viðmótsforritun, uppsetning og vefumsjónarkerfi |
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins og allra þeirra sem í honum starfa. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói þann 3. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar um Íslensku vefverðlaunin 2011 má nálgast í frétt á síðu SVEF.