
Hjá TM Software starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu af þróun og innleiðingu vefsvæða og viðskiptalausna fyrir Netið. Við bjóðum upp á heildstæða vefráðgjöf sem er sniðin að þörfum viðskiptavina okkar. Sömuleiðis bjóðum við upp á tilbúnar pakkalausnir fyrir þá sem þess óska.
Hjá TM Software starfa vel menntaðir og vottaðir verkefnastjórar sem hafa áratuga reynslu af úrvinnslu bæði einfaldra og umfangsmikilla hugbúnaðarverkefna. Við leggjum áherslu á notkun SCRUM aðferðarfræðinnar við verkefnastjórnun og hjá okkur starfa um 10 vottaðir verkefnaleiðtogar (Scrum Masters og project owners). Verkefnastjórar TM Software geta komið að verkefnum á öllum vinnslustigum verkefna.
Ráðgjafar TM Software taka að sér að uppfæra vefsvæði viðskiptavina reglulega og í takt við þarfir viðskiptavina. Þessi þjónusta getur komið í staðin fyrir stöðugildi vefstjóra innan fyrirtækja. Ráðgjafar okkar geta einnig aðstoðað við stefnumótun fyrir Netið og unnið að vefstefnu og markaðasetningu fyrirtækisins á Netinu í stærra samhengi.