Hjá TM Software er viðskiptavinurinn ávallt í fararbroddi  en ekki þær lausnir sem við höfum upp á að bjóða.  Við einblínum á að skilja sýn og þarfir viðskiptavinarins með þær áskoranir í huga sem hann þarf að takast á við.  Með þessu móti getum við komið með lausnamengi sem eru opnar og jafnframt sveigjanlegar og hægt er að byggja upp yfir tíma, innan þeirra áætlunar sem viðskiptavinurinn hefur sett sér.

Við vinnum því mjög þétt með okkar viðskiptavinum í því að finna opnar lausnir sem við teljum séu tilbúnar og hafa sannað sig í rekstri stærri fyrirtækja erlendis og okkar starfsfólk hefur þekkingu og getu til þess að styðja við þær lausnir.  Þær opnu lausnir sem við styðjum við eiga það sameiginlegt að vera auðveldar og hagkvæmar í rekstri,  ásamt því að styðja við opna staðla sem gerir okkur kleift að tengja lausnirnar saman með auðveldari hætti en ella. Ekki síst teljum við að við getum sparað töluverðan leyfiskostnað fyrir okkar viðskiptavini með því að skipta yfir í opin hugbúnað án þess að fórna þurfi gæðum né öryggi.  Þvert á móti hefur opinn hugbúnaðar sannað sig sem öruggari en aðkeyptar lausnir í sumum tilvikum.  

Við búum  yfir margra ára reynslu með opinn hugbúnað  og er tilbúin að deila henni með nýjum viðskiptavinum.

  • Ráðgjöf/innleiðing á Opin hugbúnaði
    • Þarfagreining  og hagkvæmisútreikningar -  Reiknum út arðsemi  og kostnað við að skipta yfir í opinn hugbúnað.
  • Sérlausnir/kennsla í Java (Spring og Hibernate, kóðavistun og umhverfi)
    • Okkar sérfræðingar hafa verið að þróa lausnir með opnum forritunarsöfnum eins og Spring og Hibernate í yfir 5 ár og búa yfir mikilli reynslu á þessu sviði. 
  • Innleiðing Open Office
  • Uppsetning og hýsing á Alfresco skjalakerfi
    • Alfresco er skjalakerfi sem hefur upp á að bjóða svipaða virkni og Sharepoint, fáðu sýnikennslu hvernig Alfresco getur bætt vinnuumhverfi þitt og skjalastjórnun í samræmi við ströngustu staðla.
  • Uppsetning og hýsing á Liferay Portal
    • Liferay er portall sem kemur með fjöldann allan af tilbúnum lausnum. Í kerfinu er mikið af öflugum samskiptalausnum, en einnig er hægt að nota kerfið sem vefumsjónarkerfi til að halda utan um textaefni, myndir og fleira sem tengist því að halda úti öflugum vefsvæðum.
  • Uppsetning, hýsing og innleiðing á Mule ESB samþættingar hugbúnaði
    • MuleSource er leiðandi í dreifingu á opnum samþættingar hugbúnaði með þjónustumiðaða högun (e. Service Oriented Architecture (SOA)).  Kerfið er skalanlegt,  létt og þægilegt að þróa lausnir í takt við þarfir.  Kerfið er mjög einfalt í uppsetningu og styður fullkomlega við virðisaukandi þróun hjá fyrirtækjum. Sjá nánar hér.
  • Uppsetning og hýsing á Orbeon formasmið
    • Orbeon byggir á XForms staðli, gerir enda-notendum kleift að búa til fullkomin form
  • Uppsetning og hýsing á Japser skýrslum og Jasper viðskiptagreind
    • Skýrslur og viðskiptagreind ofan því sem næstum hvað grunn sem er.
  • Uppsetning, hýsing og innleiðing opnum  gagnagrunnum - PostgreSQL, MySQL, DB2 Express-c
    • Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu á þróun í oft ódýrari og opnum gagnagrunnum.
  • Uppsetning, hýsing og innleiðing á Ubuntu og Edubuntu
    • Ubuntu stýrikerfi og vefþjónar
    •  Edubuntu kennsluhugbúnaður

Næstu Skref

Fáðu ráðgjafa til að meta hvernig þitt fyrirtæki getur sparað með opnum lausnum - við höfum ráðgjafapakka á föstu verði þannig að í lok skoðunar hefur þú upplýsingar um kostnað við innleiðingu og sparnað.   Þá er auðveldar að taka ákvarðanir um innleiðingu byggt á þeim upplýsingum. 

Jafnframt bjóðum við upp á svokallaðar POC pakka þar sem við skoðum ákveðnar lausnir með viðskiptavinum í 1-2 vikur og skilum af okkur einfaldri lausn sem sýnir lausnina í hnotskurn, án nokkurra skuldbindinga.  Þetta getum við gert á mjög hagstæðum kjörum.  Hvor leiðin sem farinn er þá er viðskiptavinurinn ávallt hafður í fararbroddi.