Ráðgjafaþjónusta TM Software byggir á áralangri reynslu af þróun og viðhaldi fjölbreyttra hugbúnaðarlausna. Reynslan og þekkingin sem hefur skapast gerir okkur kleift að framkvæma nákvæmar úttektir á fyrirliggjandi kerfum og eða greiningar fyrir nýjar lausnir með það markmið að finna hagkvæmustu leiðina.
Við einblínum á að skilja sýn og þarfir viðskiptavinarins með þær áskoranir í huga sem hann þarf að takast á við. Með þessu móti getum við komið með lausnamengi sem eru sveigjanlegt og hægt er að byggja upp yfir tíma, innan þeirra áætlunar sem viðskiptavinurinn hefur sett sér.Við vinnum því mjög þétt með okkar viðskiptavinum í því að finna lausnir sem skila sem mestu til viðskiptavinarins á sem stystum tíma og mæla árangur af þeirri vinnu.
