Við viljum tryggja að viðskiptavinir okkar fái sem mest út úr fjárfestingum sínum í lausnum og hugbúnaði sem við innleiðum fyrir viðskiptavini okkar. Við vitum að það skiptir ekki máli hversu öflug tæknin er ef notandinn hefur ekki þekkingu til að nýta sér möguleika viðkomandi lausna. Auknar fjárfestingar í upplýsingatækni og stöðugt flóknari hugbúnaðarkerfi gera kröfu um markvissa og skilvirka þjálfun notenda. Þess vegna bjóðum við upp á þjálfun og námskeið á flestum sviðum upplýsingatækninnar hvort sem það snýr að okkar eigin lausnum eða öðrum sviðum. Námskeið fyrir alla
Reyndir leiðbeinendur og ráðgjafar með yfirgripsmikla þekkingu á hugbúnaðarlausnum og þeim sérsviðum sem við störfum á tryggja að þátttakendur fá bestu þjálfun sem völ er á hverju sinni. Námskeið okkar geta einnig verið sérsniðin að þörfum einstaka viðskiptavina.
