Hjá TM Software starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu af þróun og innleiðingu vefsvæða og viðskiptalausna fyrir vefinn.

Við bjóðum upp á heildstæða vefráðgjöf sem er sniðin að þörfum viðskiptavina okkar. Sömuleiðis bjóðum við  upp á tilbúnar pakkalausnir fyrir þá sem þess óska.

Markmið ráðgjafar okkar eru:
  • Að veita heildstæða og faglega ráðgjöf við uppbyggingu, viðbætur og breytingar á öllum gerðum veflausna.
  • Að ráðgjöfin skili sem mestri arðsemi fyrir viðskiptavini okkar og ánægðari vefnotendum.
  • Að veflausninar sem við vinnum við skari fram úr á þeim sviðum sem við skilgreinum með viðskiptavinum okkar.

Við hjálpum þér að:

  • fjölga heimsóknum á vefinn
  • fá starfsmenn til að nota innri vefinn meira
  • fá viðskiptavini til að fullnýta möguleikana á ytri vefnum
  • endurhanna vefinn þinn
  • fá nýjar hugmyndir um viðbætur á vefinn
  • fá upplýsingar og samanburð við samkeppnisaðila
  • vera vel upplýstur um stöðuna og nýjugar á vefmarkaðnum almennt.