Ráðgjafar TM Software hafa mikla reynslu í uppsetningu og vefstjórn minni og stærri vefsvæða. Við höfum fylgt mörgum okkar viðskiptvina í gegnum þróun þeirra á Netinu, frá því að vera lítil vefsvæði með lágmarks upplýsingum í að verða stór hluti af tekjustreymi þeirra. Umfram allt er mikilvægt að fyrirtæki marki sér vefstefnu í takt við viðskiptaáætlun. Aðstoð okkar við vefstjórnun getur komið í staðin fyrir stöðugildi vefstjóra innan fyrirtækja.
- Við tökum að okkur að uppfæra vefsvæði fyrirtækja reglulega og í takt við þarfir þeirra.
- Þessi þjónusta getur komið í staðin fyrir stöðugildi vefstjóra innan fyrirtækja.
- Við framkvæmum nákvæmar vefmælingar og fylgjum henni eftir.
- Leggjum upp úr aukinni áhersla á markaðssetningu á vefnum.
- Leitarvélarbestun - mikilvægt er að vefsvæði sé sett upp rétt fyrir leitarvélar.
- Við veitum viðskiptavinum betri yfirsýn yfir samkeppnisaðila á markaðnum og hvað er að gerast á þeirra vefsvæðum.
- Fyrirætki sem vilja halda uppi öflugum vef en hafa ekki vefstjóra í fyrirtækinu.
- Fyrirtæki sem koma sér upp vef upphaflega en hafa ekki gert ráð fyrir miklu viðhaldi við vefinn en vilja gjarnan uppfæra vefinn oftar.
- Fyrirtæki sem eru að breyta um áherslur og vilja öflugri vef án þess að ráða til sín vefstjórnenda.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að fræðast nánar um ráðgjöf og þjónustu okkar á þessu sviði.
