TM Software er framúrskarandi hugbúnaðarfyrirtæki sem nýtir þekkingu, reynslu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina sinna.  Við erum sérfræðingar á sviði:

  • Veflausna - Viðskiptalausnir fyrir Internetið
  • Heilbrigðislausna - Hugbúnaðarlausnir fyrir heilbriðgisstofnanir
  • Færslumiðlunarlausna fyrir farsímamarkað
  • Tímaskráningalausna - Agile verkefnastjórnun
  • Samþættingar og sérlausna - Þjónustumiðuð högun
  • Viðskiptagreindar - Stjórnendaupplýsingar og viðskiptaferlar

Lausnaframboð okkar samanstendur af okkar eigin hugbúnaðarvörum og vörum öflugra samstarfsaðila okkar.

Hjá TM Software starfa um 70 sérfræðingar með reynslu víðsvegar úr atvinnulífinu. Þeir, ásamt yfir tuttugu ára reynsla TM Software, hefur skapað félaginu sérstöðu á markaði í ráðgjöf, þjónustu og hugbúnaðarþróun fyrir alla geira atvinnulífsins.

Markmið okkar endurspeglast í slagorði okkar: Okkar þekking - þinn styrkur

  • Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf á sviði hugbúnaðarþróunar
  • Að stuðla að velgengni viðskiptavina með skýr markmið og áherslu á arðsemi verkefna
  • Að auka á skilvirkni viðskiptaferla hjá viðskiptavinum til að bæta samkeppnisstöðu og auka verðmæti

TM Software er í eigu Nýherja samstæðunnar, sjá nánar á www.nyherji.is.