TM Software

Fréttir

Fréttir frá árinu 2006

Friðrik Sigurðsson hættir sem forstjóri TM Software

18.12. 2006

Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM Software, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með 1. janúar næstkomandi. Friðrik stofnaði TM Software undir nafni TölvuMynda fyrir 20 árum og hefur verið forstjóri félagsins síðan. Friðrik tilkynnti um ákvörðun sína á starfsmannafundi í morgun. Við starfi forstjóra tekur Ágúst Einarsson sem verið hefur framkvæmdastjóri TM Software - Infrastructure Management frá 2003.

Meira

TM Software setur upp nýja vefsíðu

08.12. 2006

Búið er að setja upp nýtt vefsvæði hjá TM Software. Nýi vefurinn er á íslensku og er þar miðast við að hafa allar upplýsingar um vörur, lausnir og þjónustu TM Software. Slóðin að vefnum er www.tm-software.is og www.t.is

Meira

Notendaráðstefna fyrir notendur ContentXXL

04.12. 2006

Í desember héldu TM Software og ContentXXL International sameiginlega notendaráðstefnu fyrir notendur vefumsjónarkerfisins ContentXXL. Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum TM Software í Holtasmára við góðar undirtektir en félagið er einkasöluaðili kerfisins á Íslandi.

Meira

Björgunarskóli Landsbjargar semur við TM Software

29.11. 2006

Fyrr í vikunni var skrifað undir samning milli TM Software og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (SL) um gerð nýs skráningarkerfi fyrir Björgunarskóla SL. Sérfræðingar TM Software hafa unnið að greiningu á kerfinu frá því í haust en gert er ráð fyrir að kerfið verði tilbúið í mars 2007.

Meira

Ánægðir viðskiptavinir

29.11. 2006

Árleg þjónustukönnun TM Software var gerð í sumar meðal viðskiptavina félagsins. Könnunin var unnin í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Intellecta ehf. sem sá um alla úrvinnslu.

Meira

Nýr gagnvirkur vefur um íslenskan skuldabréfamarkað

17.11. 2006

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra opnaði 15. nóvember sl. nýjan upplýsingavef www.bonds.is á ráðstefnu um íslenskan skuldabréfamarkað á Hótel Nordica. Lánasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður, Glitnir, Kaupþing banki, Landsbanki, MP Fjárfestingabanki, Straumur-Burðarás og Kauphöll Íslands standa að vefnum sem TM Software hannaði.

Meira

Ný vefsvæði hjá Icelandair

04.10. 2006

Ný vefsvæði hjá Icelandair

Meira

www.reykjavik.is í ContentXXL

22.08. 2006

Á síðasta ári skrifuðu Reykjavíkurborg og TM Software undir samning um kaup borgarinnar á ContentXXL vefumsjónarkerfinu. Það kerfi gerir alla miðlun upplýsinga á ytri og innri vefsvæðum borgarinnar einfaldari og aðgengilegri. Mikil greiningarvinna hafði farið fram varðandi uppbyggingu og ferla á vef Reykjavíkurborgar og mun nýi vefurinn sameina öll helstu vefsvæði borgarinnar undir slóðinni www.reykjavik.is.

Meira

Sjálfsafgreiðslustöðvar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

17.05. 2006

TM Software hefur sett upp sex sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir innritun farþega í innritunarsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þetta er viðbótarþjónusta sem flugfarþegum er boðið upp á og geta þeir nú valið um að innrita sig sjálfir eða nota hefðbundna þjónustu við innritun.

Meira

Alma – eitt umfangsmesta hugbúnaðarverkefni á Íslandi

03.03. 2006

Um síðustu áramót lauk TM Software við þróun á Ölmu, nýju upplýsingakerfi fyrir lífeyristryggingasvið Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Verkefnið hefur staðið yfir síðastliðin þrjú ár og er eitt umfangsmesta hugbúnaðarverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi. Kerfið er eitt af meginhugbúnaðarkerfum TR og tengist fjölda annarra kerfa bæði innan og utan stofnunarinnar. Til marks um umfang kerfisins eru í hverjum mánuði greiddir 3,5-4 milljarðar króna til viðskiptavina TR í gegnum Ölmu sem svarar til 30% af útgjöldum heilbrigðiskerfisins á ársgrundvelli. Vel hefur tekist til við þróun kerfisins sem er þakkað öguðum vinnubrögðum og góðu samstarfi þeirra aðila sem komu að verkefninu. Í byrjun mars skrifuðu TM Software og TR formlega undir verklok verkefnisins og áframhaldandi þróunar- og þjónustusamning til fimm ára.

Meira