Jólagjöf TM Software, eMR og Skyggnis til Krabbameinsfélags Íslands
Systurfyrirtækin TM Software, eMR og Skyggnir hafa ákveðið að styðja við bakið á starfsemi Krabbameinsfélags Íslands og veita félaginu veglega jólagjöf í formi fjárstyrks að andvirði þeirrar fjárhæðar sem hefur hingað til verið varið í jólagjafir og jólakort til viðskiptavina.
MeiraTM Software gefur til ABC barnahjálpar
Síðla í nóvember gaf TM Software um ýmis húsgögn til ABC barnahjálpar og styrktu þar með starf félagsins. Um var að ræða um 160 fundarstóla, hillur, skrifborð og fleiri húsgögn.
MeiraStafræn myndavél í verðlaun
TM Software var aðalstyrktaraðili Iceweb 2008, alþjóðlegrar tveggja daga ráðstefnu um vefmál sem haldin var af SVEF, Samtökum vefiðnaðarins, 13. og 14.nóvember sl. Á ráðstefnunni var settur upp laufléttur spurningarleikur og var starfræn myndavél í verðlaun.
MeiraNýherji birtir uppgjör á þriðja ársfjórðungi
Sala á vöru og þjónustu nam rúmlega 3.600 mkr á þriðja ársfjórðungi 2008 hjá samstæðu Nýherja, samanborið við 2.750 mkr á sama tímabili í fyrra. Sala hefur því aukist um 31% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra. Tap var á rekstri samstæðunnar sem nemur 262 mkr á þriðja ársfjórðungi.
MeiraTM Software áfram með WebSense öryggislausnir
Undanfarin ár hefur TM Software boðið viðskiptavinum sínum upp á stjórnun vefumferðar og varnir gegn netlægum óværum með búnaði frá WebSense. Nýverið var samningur við WebSense endurnýjaður og stækkaður og getur TM Software nú boðið fyrirtækjum lausnir og þjónustu WebSense ásamt framúrskarandi ráðgjöf um stillingar og notkun á stjórnun vefumferðar.
MeiraScrum bætir gæði og eykur framleiðslu
TM Software tók nýverið þátt í tveggja daga alþjóðlegri Scrum ráðstefnu, Nordic Scrum Forum 2008, sem haldin var í Stokkhólmi. TM Software var einn aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar og var með bás á henni þar sem sérfræðingar félagsins í Scrum kynntu hvernig TM Software getur aðstoðað við innleiðingu Scrum verkefnastýringarinnar.
MeiraRáðstefna TM Software - Hagræðing í upplýsingatækni
Þann 26. september sl. efndi TM Software til ráðstefnu um ýmsar sparnaðarleiðir í rekstri tölvukerfa. Ráðstefnan bar heitið Hagræðing í upplýsingatækni en hjá TM Software starfa um 230 starfsmenn sem hafa áralanga reynslu við að hagræða í rekstri tölvukerfa og eru sífellt að leita leiða til að nota upplýsingatækni til að lækka rekstrarkostnað fyrirtækja.
MeiraNýtt viðskiptamódel TM Software og Nýherja hf.
Stjórn Nýherja hf. hefur ákveðið að innleiða nýtt viðskiptamódel og skipulag fyrir félagið en Nýherji keypti TM Software fyrr á árinu. Markmið með breytingunum er að skerpa áherslur með sérhæfingu dótturfélaga á einstökum sérsviðum ásamt því að samhæfa og auka hagkvæmni í rekstri félagsins.
MeiraNýr farsímavefur settur í loftið hjá Icelandair
TM Software hefur byggt um nýjan farsímavef fyrir Icelandair. Viðskiptavinir Icelandair geta nú skoðað komur og brottfarir og flugáætlanir Icelandair sem og innritað sig í flug og séð upplýsingar um tengiliði í viðkomandi landi í farsíma sínum.
MeiraTM Software og Microsoft styrkja Myanmar hjálparstarfið með Sharepoint lausn
Þegar fellibylurinn Nargis skall á Myanmar í byrjun maí leitaði Microsoft Corporation eftir því að TM Software, ásamt nokkrum öðrum samstarfsaðilum Microsoft, styrkti hjálparstarfið á hamfarasvæðunum með því að útbúa lausn byggða á SharePoint fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Lausnin snýst um að halda utan um öll gögn og miðlun upplýsinga á hamfarasvæðinu þar sem tugir hjálparstofnana koma að hjálparstarfinu og er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu til staðar fyrir þær.
MeiraEinfaldar tölvupóstsendingar með Herstjóranum
Herstjórinn er póstlista- og herferðakerfi sem býður upp á mikla möguleika í útsendingu efnis og utanumhaldi upplýsinga sem sendar eru á fyrirfram skilgreinda póstlista.
MeiraNýtt vefsvæði www.vitaferdir.is
Í byrjun ágúst opnaði ný ferðaskrifstofa VITA vefsvæði sitt www.vitaferdir.is um leið og hún hóf opinberlega starfssemi sína. Vefsvæðið var sett upp af starfsmönnum TM Software í vefumsjónarkerfinu VYRE.
MeiraÁrangursrík vefstjórnun
Nýverið hélt Skýrslutæknifélag Íslands í samstarfi við SVEF, samtök vefiðnaðarins, ráðstefnuna Árangursrík vefstjórnun sem fjallaði um vefi í rekstri og nýtingu mannafla. Tveir sérfræðingar TM Software héldu fyrirlestur á ráðstefnunni sem var vel sótt af fulltrúum ýmissa af helstu fyrirtækjum og stofnendum landsins.
MeiraSamstarf milli TM Software og MuleSource, leiðandi fyrirtækis í opnum samþættingar hugbúnaði
TM Software hefur skrifað undir samstarfssamning við bandaríska fyrirtækið MuleSource, leiðandi dreifingaraðila á opnum samþættingar hugbúnaði (e.open source). TM Software getur nú boðið viðskiptavinum sínum ódýra samþættingarlausn sem eykur verðmæti fjárfestinga þeirra í upplýsingatækni.
MeiraAtorka með nýtt vefsvæði
Nýverið opnaði nýtt vefsvæði fjárfestingarfyrirtækisins Atorku www.atorka.is en starfsmenn TM Software unnu að uppsetningu vefsins og er honum stýrt í gegnum WebMaster vefumsjónartólið.
MeiraTM Software og ContentXXL með kynningu og ráðstefnu
Nýverið héldu TM Software og ContentXXL International sameiginlegan kynningar- og notendaráðstefnudag í höfuðstöðvum TM Software að Urðarhvarfi 6. Góður rómur fór af deginum en TM Software er einkasöluaðili ContentXXL kerfisins á Íslandi.
MeiraSamkeppniseftirlitið samþykkir samruna Nýherja hf. og TM Software hf.
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Nýherja hf. og TM Software hf. Gengið var endanlega frá samningi um kaup Nýherja á öllu hlutafé í TM Software 25. janúar sl. og voru þau háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar í rekstrarþjónustu og hýsingu og þróun sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software er móðurfélag Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og IPT.
MeiraNetinnritun hjá Icelandair
TM Software hefur þróað innritunarkerfi fyrir Icelandair sem gerir farþegum kleift að bóka sig á netinu í öll flug frá landinu. Innritunarkerfið var formlega tekið í notkun 8.mars sl. og geta farþegar nú farið inn á www.icelandair.is og innritað sig í flug sitt u.þ.b. sólarhring fyrir flug.
MeiraNýtt vefsvæði hjá Íslandspósti www.postur.is
Í tilefni af 10 ára afmæli sínu opnaði Íslandspóstur nýverið nýtt vefsvæði www.postur.is. Vefsvæðið er unnið af sérfræðingum TM Software í vefumsjónarkerfinu ContentXXL en stjórnendur Íslandspósts fengu áhuga á því eftir ráðstefnu TM Software um kerfið. Eftir forval á nokkrum vefumsjónarkerfum varð ContentXXL og þjónusta TM Software fyrir valinu.
MeiraTM Software á ráðstefnu Microsoft Heroes happen {here}
Á dögunum tók TM Software þátt í ráðstefnu Microsoft - Heroes happen {here}. Ráðstefnan var haldin í Smárabíói í Kópavogi og var stærsta netþjóna- og þróunarumhverfiskynning í sögu Microsoft. Markmiðið var að kynna þrjár stærstu netþjóna afurðirnar á markaðnum í dag; Windows Server 2008, Visual Studio 2008 og SQL Server 2008.
MeiraTil hamingju með tilnefningarnar til Vefverðlaunanna 2007.
Starfsmenn TM Software óska Icelandair, Landsbjörgu og Sjóvá innilega til hamingju með tilnefningar þeirra til SVEF Vefverðlaunanna 2007. Sérfræðingar TM Software vinna að þróun þessara vefsvæða og eru þau öll sett upp í mismunandi vefumsjónarkerfum undir vörumerkinu Origo.
Meira











