31.01. 11

Til hamingju með tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2010

Starfsmenn TM Software óska: Butik.is, Icelandair.is, Ring.is, Listasafnreykjavikur.is, Pressan.is, Hlaupastyrkur.is, Inspiredbyiceland.is og Karlmennogkrabbamein.is innilega til hamingju með tilnefningar þeirra til Vefverðlaunanna 2010 sem veitt eru af Samtökum vefiðnaðarins (SVEF). Sérfræðingar TM Software hafa unnið að þróun þessara vefsvæða með fyrirtækjum og stofnunum sem standa að baki vefsvæðunum.

Meira
10.02. 11

VÍB opnar nýtt vefsvæði með TM Software

Nýverið opnaði VÍB, eignastýringasvið Íslandsbanka nýtt vefsvæði www.VIB.is en starfsmenn TM Software unnu að uppsetningu vefsins í VYRE Unify vefumsjónarkerfinu sem Íslandsbanki notar til að þróa og viðhalda vefsvæðum sínum.

Meira
21.03. 11

Við erum að leita að kraftmiklum og hæfileikaríkum einstaklingum

TM Software leitar að kraftmiklum og hæfileikaríkum einstaklingum sem vilja vera hluti af öflugu teymi sérfræðinga og vinna að fjölbreyttum verkefnum á skemmtilegum vinnustað.

Meira
19.08. 11

Vefum til góðs - TM Software tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu

16 starfsmenn TM Software ætla að hlaupa ýmist 10 eða 21 km og safna um leið áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Léttu átaki var hleypt af stað innanhús undir slagorðinu "Vefum til góðs", en TM Software hefur að undanförnu sett upp nokkra af stærstu áheitavefum landsins með WebMaster vefumsjónarkerfinu.

Meira
01.03. 11

Mottumars vefurinn fer á flug

Mottumars, árvekniátak um karlmenn og krabbamein, hefur farið einstaklega vel af stað. Mikil aðsókn er á Mottumars vefinn, sem TM Software hannaði, frá því að hann opnaði.

Meira
10.03. 11

EMR sameinað TM Software

Ákveðið hefur verið að innleiða nýtt skipulag fyrir Nýherja og dótturfélög á Íslandi. meðal annars verða TM Software og EMR heilbrigðislausnir sameinað undir merkjum TM Software. Breytingarnar taka gildi 1. apríl næstkomandi.

Meira
17.03. 11

Vefur Icelandair vann til verðlauna á Netið Expo

Sýningin Netið Expo var haldin síðustu helgi. Í tenglsum við sýninguna voru NEXPO 2010 verðlaunin afhent og vann Icelandair til verðlauna í flokknum "Fyrirtækjavefur ársins - Stór fyrirtæki (+50)".

Meira
30.03. 11

Sala á Tempo marfaldast í gegnum netið

Tímaskráningarhugbúnaðurinn Tempo frá TM Software er nú seldur til um 50 landa en sala á búnaðinum hefur margfaldast yfir netið fyrstu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Meðal nýrra viðskiptavina má nefna Kodak og Intel í Bandaríkjunum.

Meira
15.04. 11

Gríðarleg aðsókn á Mottumars vefinn

67% meiri aðsókn var á Mottumars vefinn í ár samanborið við árið á undan, en rúmlega 500 þúsund heimsóknir voru á vefnum frá lok febrúar og fram í lok mars 2011. Þá voru um 50% fleiri síðuflettingar nú en í fyrra, eða rúmlega þrjár milljónir talsins.

Meira
20.04. 11

EMR hluti af TM Software

Í byrjun apríl var EMR ehf., sem þróar sjúkraskrárkerfi og lausnir á heilbrigðissviði, sameinað TM Software ehf. Breytingin er hluti af nýju skipulagi Nýherjasamstæðunnar á Íslandi.

Meira
18.05. 11

Keppir í alþjóðlegri forritunarkeppni

Forritari hjá TM Software er meðal efstu manna í forritunarkeppni alþjóðlega hugbúnaðarrisans Atlassian. Hægt er að kjósa um bestu lausnina í opinni kosningu um netið.

Meira
14.06. 11

Vann netkosningu í forritunarkeppni Atlassian

Forritari hjá TM Software vann netkosningu í forritunarkeppni hjá alþjóðlega hugbúnaðarrisanum Atlassian. Viðar Svansson, forritari hjá TM Software, var meðal 60 keppenda um að þróa viðbætur fyrir kerfi og vörur frá Atlassian.

Meira
20.06. 11

MFBM: Hátt í 13 mkr. söfnuðust

Hátt í 13 milljónir söfnuðust í áheitakerfi fyrir Á meðan fæturnir bera mig, söfnun til styrktar krabbameinssjúkum börnum. TM Software annaðist uppsetningu á áheitakerfinu og vef átaksins með WebMaster vefumsjónarkerfinu.

Meira
06.06. 11

Öflugur vefur Öryggismiðstöðvarinnar

TM Software hefur þrófað nýjan vef og vefverslun fyrir Öryggismiðstöðina. Jafnframt var unnið að sérstöku Facebook svæði, þar sem Trausti ráðgjafi Öryggismiðstöðvarinnar, er persónugerður og fjallar um nýjungar og segir fréttir frá fyrirtækinu.

Meira
16.08. 11

Reykjavíkurmaraþon: 16 milljónir hafa safnast

Nú fjórum dögum fyrir Reykjavíkurmaraþon hafa um 16 milljónir króna safnast í áheitasöfnuninni í tengslum við hlaupið.

Meira