Ný vefsvæði Icelandair – aukinn hraði, meiri stöðugleiki og öflugri þjónusta
Undanfarið ár hafa TM Software og Icelandair unnið að einu umfangsmesta vefverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi. Það var innleiðing á nýju vefumsjónarkerfi, Vyre Unify, fyrir Icelandair-samstæðuna og endurhönnun á veflausnum hennar með það að markmiði að auka enn frekar sölu og þjónustu á vefnum og mæta vaxandi samkeppni. Verkefnið var afar umfangsmikið og metnaðarfullt en um 30-40 manns unnu að því hjá bæði TM Software og Icelandair.
Meirihluti bókana á Íslandi fer í gegnum Netið og fjöldi erlendra bókana eykst sífellt. „Markmið Icelandair er að auka sölu á Netinu enn frekar með því að stýra sölu- og markaðssetningu inn á Vefinn og byggja upp öflugar veflausnir því til stuðnings. Þannig nær fyrirtækið að auka hagræði með meiri sölu og lægri kostnaði,“ segir Halldór Harðarson, markaðsstjóri hjá Icelandair.
Tæknileg markmið verkefnisins voru að endurbæta högun, auka uppitíma vefsvæða, endurskipuleggja ferla og bæta aðgang starfsmanna og viðskiptamanna að veflausnum og upplýsingum. Eins og áður segir gekk verkefnið út á að innleiða Vyre Unify, nýtt vefumsjónarkerfi og gátt (e. portal) hjá samstæðunni auk þess að:
- endurhanna öll níu vefsvæði Icelandair;
- endurskrifa virknieiningar;
- auka virkni og endurhanna bókunarvél;
- endurhanna og þróa á viðskiptalag ofan á viðskiptamannagrunn.
Auðveldur aðgangur að upplýsingum
Nýi vefurinn var hannaður með það að markmiði að sem auðveldast væri fyrir notendur að bóka ferðir og nálgast upplýsingar. Til að tryggja að svo væri nýtti Icelandair sér Webtrends-vefgreiningartólið til að greina hegðun notenda á vefsvæðum sínum en einnig var unnin ítarleg markhópagreining. Með þetta að leiðarljósi voru m.a. bókunarferli, veftré og miðlun upplýsinga skilgreind upp á nýtt.
Settar voru upp skilmerkilegar og aðgengilegar flýtileiðir þar sem notandi getur nálgast helstu upplýsingar með einum músarsmelli. Má þar nefna komur og brottfarir, aðgang að vildarklúbbi, rafræna farseðla og leiðakerfi. Einnig hafa þessir þjónustumöguleikar verið gerðir gagnvirkari og má sem dæmi nefna að notendur geta skoðað leiðakerfið, séð þannig allar flugleiðir Icelandair og bókað í beinu framhaldi flug út frá þeirri leið sem er valin. Einnig geta notendur fengið ýmsar upplýsingar um leiðina sem valin er, s.s veðurupplýsingar, ferðatíma og vegalengdir.
Endurhönnun á bókunarferlinu
Eins og kom fram hér að framan er markmið Icelandair að ná fram hagræði með aukinni sölu á Netinu. Einn stærsti þáttur verkefnisins var því að breyta bókunarferlinu til að einfalda það fyrir viðskiptavini. Margir helstu þjónustumöguleikar eru nú orðnir „dínamískir“ með notkun AJAX (Asynchronous Javascript And XML) sem gerir síðuna hraðvirkari og notendum kleift að breyta svæðum án þess að endurhlaða alla síðuna. Þessi nýja þjónusta auðveldar notendum m.a. að klára bókun á mun einfaldari og fljótlegri máta. Auk þessa hefur dagatalið á síðunni verið endurbætt, uppflettingar fargjalda eru nú hraðari og ekki þarf að hlaða inn allri síðunni þó svo breyting verði á forsendum notanda.
Aðgangur
Mikil vinna var lögð í að gera aðgang að vefnum eins greiðan og mögulegt er og þess gætt að þeir sem eiga í erfiðleikum eða geta ekki lesið af skjá geti nálgast upplýsingarnar sem birtast á vefnum. Uppbyggingin á Vyre Unify gerir þetta kleift með því að aðskilja efni og framsetningu. Einnig er kóðauppbyggingu á vefnum þannig háttað að skjálesarar skilja uppbyggingu vefsíðunnar sem auðveldar blindum og þeim sem styðja sig við skjálesara að vafra á vefnum. Rík áhersla var lögð á notendaprófanir þar sem hinn dæmigerði notandi Icelandair myndi fá tækifæri til að upplifa og senda sitt álit á hinum nýja vef. Sjá ehf hafði umsjón með framkvæmd viðmótsprófana á Íslandi en sambærilegir þjónustuaðilar voru nýttir erlendis.
Svartími
Eitt af meginmarkmiðum nýja vefjarins var að stytta biðtíma notenda eftir þeim upplýsingum sem þeir biðja um á vefnum en um leið átti vefurinn að vera virkari, sem í flestum tilfellum hefur þýtt lengri bið eftir upplýsingum. Sú er hins vegar ekki raunin á nýja vefnum því betri högun, einfaldari stílsnið og nýrri tækni, þ.e. AJAX, hafa stytt svartímann til muna. Eins og fyrr segir gerir AJAX mögulegt að uppfæra einungis hluta vefsíðunnar. Því þarf ekki að hlaða allri síðunni upp á nýtt heldur eingöngu þeim hluta sem breytist með nýrri beiðni notandans. TM Software studdist við ýtrustu kröfur um CSS XHTML-staðla í verkefninu og notaði högun og framsetningu sem oft er kölluð „One True Layout“ og helstu sérfræðingar telja þá bestu í dag. Þetta tryggir einfaldari stílsnið, bætta framsetningu og auðveldara viðhald.
Virkni og þjónustutól
Vefþjónustutól eru mikilvægur hluti af vefkerfi Icelandair í dag. Um 100 vefþjónustutól, byggð samkvæmt Java JSR 168 Portal-staðli, voru smíðuð fyrir rúmlega 30 virknieiningar á nýja vefsvæðinu. Til að tryggja svartíma við innri kerfi Icelandair var smíðað sérstakt WSL (Web Service Layer) millilag, byggt á Java Spring og Hibernate. Meginmarkmið WSL er að tryggja sem hæstan uppitíma og góðan svartíma á milli virknieininga en öll samskipti eru eins straumlínulöguð og hægt er samanborið við venjuleg SOAP-samskipti sem valda töluvert meira álagi.
Icelandair komið í fremstu röð
Með innleiðingu á Vyre Unify, nýrri högun og nýjum vefsvæðum hefur Icelandair fleytt sér í fremstu röð flugfélaga á Netinu. „Kerfið býr yfir miklum möguleikum sem auðveldar alla vinnu Icelandair í framtíðinni. Vyre er mjög öflugt vefkerfi sem gerir okkur kleift að taka næstu skref og þróa öflugar veflausnir í framtíðinni. Farið var í viðamikla vinnu í leit að kerfi sem uppfyllti kröfur okkar og kom það á daginn að Vyre var sú lausn sem við sóttumst eftir,“ segir Hjörtur Þorgilsson, yfirmaður upplýsingatækni hjá Icelandair.
