Ágúst Einarsson segir það mikinn heiður að fá að taka við rekstri TM Software sem er eitt af stærstu og elstu hugbúnaðarfyrirtækjum landsins. Auk þess er fyrirtækið eitt af stærstu og framsæknustu þekkingarfyrirtækjum landsins með fleiri en 450 starfsmenn í 11 löndum. TM Software hefur markað sér þá skýru stefnu að vera alltaf meðal þeirra bestu á þeim markaðssviðum sem fyrirtækið starfar á. Fyrirtækið hefur verið í miklum sóknarhug bæði hérlendis sem erlendis og á því verður engin breyting.
Ágúst gegndi áður stöðu framkvæmdastjóri rekstrarsviðs TM Software frá árinu 2003 en hann hefur mikla reynslu úr hugbúnaðargeiranum. „Ég er búinn að starfa í hugbúnaðargeiranum í 16 ár bæði hér innanlands sem og erlendis. Ég vona að mín alþjóðalega reynsla í hugbúnaðargeiranum geti einnig nýst vel enda á fyrirtækið mikil sóknartækifæri erlendis“. Ágúst segir að stefnan verði tekin á að innri vöxtur fyrirtækisins verði meiri heldur en markaðurinn almennt er að vaxa og að auka markaðshlutdeild fyrirtækisins enn frekar. Hann segir enn fremur að ekki sé von á neinum stórum áherslubreytingum. „Það helsta er að við ætlum að hlúa betur að okkar rekstrareiningum með tilliti til frumkvæðis og sjálfstæðis. Aðalatriðið er svo að vinna náið með okkar starfsfólki, taka sameiginlegar ákvarðanir og leyfa starfsfólki að vaxa í sínu starfi. Starfsfólkið er okkar mikilvægasta auðlind, ef starfsfólkið er ánægt í starfi og við náum að virkja metnaðinn þá komust við ansi langt“. Ágúst segir að á döfinni sé auk þess að fara yfir stefnu og áherslur fyrirtækisins með starfsfólki og taka vel á móti þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem hafa verið að koma til fyrirtækisins undanfarið og ekki síður að fá tækifæri á að hitta og ræða við núverandi viðskiptavini fyrirtækisins.
Stjórn TM Software vill koma því á framfæri að ákvörðun Friðriks var algjörlega hans eigin. Afkoma félagsins sé góð, enginn ágreiningur hafi komið upp og sóknarhugur sé í stjórn og starfsfólki. Friðriki sjálfum fannst vera kominn tími til að hætta eftir frábærlega vel unnin störf síðustu 20 árin og vill starfsfólk TM Software og stjórn þess þakka honum fyrir fórnfús störf fyrir félagið sl. 20 ár og á hann að öðrum ólöstuðum heiðurinn af því félagi sem TM Software er í dag og stefnumörkun þess.
Aðrar stjórnendabreytingar hafa einnig átt sér stað hjá TM Software.

Hrannar Erlingsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóra TM Software - Maritech á Íslandi og tekur við stöðunni af Jóni Kristjánssyni sem hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Manna og Músa ehf. Hrannar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands af fjármála- og reikningshaldssviði frá árinu 1992 og hefur unnið hjá TM Software - Maritech síðan í október 2003, lengst af sem yfirmaður fyrirtækjasviðs. Hrannar er með víðtæka reynslu af þróun og ráðgjöf við uppbyggingu viðskiptakerfa og starfaði hjá Streng hf. að slíkum verkefnum sem ráðgjafi auk tengdra stjórnunarstarfa 1995-2003. Á árunum 1992–1995 starfaði Hrannar sem aðalbókari hjá Frosta hf. á Súðavík og fjármálastjóri hjá Gámi hreinsunarþjónustu.
Sigurður Þórarinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs TM Software af Ágústi Einarssyni. Sigurður hefur starfað sem forstöðumaður rekstarsviðs TM Software frá ágúst 2004. Áður starfaði hann sem þróunarstjóri hjá TrackWell Software frá 1996 til 2004 og var einn af stofnendum þess. Sigurður er með MS gráðu í iðnaðarvélaverkfræði frá University of Washingtonn frá árinu 1996 og BS gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla íslands frá árinu 1991.
Einar Gunnar Þórisson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá TM Software. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í um 6 ára skeið, lengst af sem framkvæmdastjóri sér- og veflausnasviðs TM Software. Einar Gunnar útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 1994. Hann starfaði sem sölu- og markaðsstjóri Zimsen flutningsmiðlunar 1995 til 1996, sölu- og markaðsstjóri Verk- og kerfisfræðistofunnar 1996 til 2000 og sem framkvæmdastjóri sér- og veflausnasviðs TM Software árin 2000 til 2005. Árið 2006 starfaði hann að viðskiptaþróun hjá heilbrigðislausnasviði TM Software.
Að lokum hefur Ásmundur Bjarnason tekið við starfi forstöðumanns rekstrarsviðs TM Software. Ásmundur hefur starfað sem forstöðumaður ráðgjafarsviðs TM Software frá ágúst 2004. Ásmundur er með MS gráðu í rekstrarverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku frá árinu 1999 og tölvunarfræðigráðu frá Háskóla Íslands frá árinu 1990. Áður en hann kom til starfa hjá TM Software starfaði hann 2000- 2004 hjá Span hf., dótturfélagi Kögunar, við verkefnastjórnun og daglegan rekstur fyrirtækisins, Ax hugbúnaðarhúsi 1999-2000 og við hugbúnaðarþróun og þjónustustjórn hjá Kerfi hf. 1990-1997.
Starfsfólk og stjórn TM Software vill óska nýjum forstjóra, framkvæmdastjórum og forstöðumanni innilega til hamingju með nýju störfin og þakkar um leið fráfallandi forstjóra og framkvæmdastjóra fyrir vel unnin störf hjá TM Software.
