www.icelandair.co.uk hefur unnið verðlaunin „best hannaða vefsvæði ársins“ (Best Website Design of the Year) á hinni alþjóðlegu hátíð Technology For Marketing & Advertising (TFM). Að auki hefur www.icelandair.is hlotið viðurkenningar Íslensku vefverðlaunanna „besti íslenski vefurinn“ og „besti fyrirtækisvefurinn“ en aðstandendur þeirra eru Samtök vefiðnaðarins (SVEF) og ÍMARK.
TM Software óskar Icelandair innilega til hamingju með viðurkenningarnar en á síðasta ári endursmíðaði TM Software vefsvæði Icelandair frá grunni í Vyre vefkerfinu. Vyre er fullbúið vefkerfi fyrir fyrirtæki sem krefjast þess að veflausnir þeirra séu í takt við auknar kröfur og hraðar breytingar í viðskiptaumhverfinu. TM Software endurhannaði veflausnir fyrir Icelandair með það að markmiði að auka enn frekar sölu og þjónustu á vefnum og mæta vaxandi samkeppni.
Meðal annars voru virknieininga endurskrifaðar fyrir vefsvæðin, virkni aukin og bókunarvélar endurhannaðar ásamt því að viðskiptalag var endurhannað og smíðað ofan á viðskiptamannagrunn Icelandair. Auk þess sá rekstrarsvið TM Software um að endurnýja hýsingarumhverfi vefsvæðanna frá grunni og rekstrarumhverfi þeirra var endurnýjað og endurhannað. Settur var upp nýr búnaður og höguninni breytt sem hefur skilað sér í miklu betri og öruggari rekstri kerfisins.
