17.04. 07

Ný og mikið endurbætt útgáfa SharePoint frá Microsoft  er komin á markaðinn. Mikil eftirvænting hefur verið varðandi þessa uppfærslu kerfisins og þess vegna býður TM Software, í samstarfi við Microsoft, til kynningarfundar um Microsoft Office SharePoint Server 2007 þann 25.apríl 2007 milli 8:30 og 12:00. 

Microsoft Office SharePoint Server 2007
Microsoft Office SharePoint Server 2007 (MOSS 2007) er samþætt kerfi fyrir heildstæða leit, meðhöndlun rafræns efnis, uppsetningu og stjórnun verkferla, einfalda miðlun upplýsinga og aukið aðgengi að rekstrarupplýsingum. MOSS 2007 byggir á Microsoft Windows SharePoint Services en þar er að finna einingar fyrir samvinnu með skjöl og upplýsingar ásamt grunni til að byggja öflugar veflausnir.

Efni sem fjallað verður um
Ráðgjafar TM Software hafa kynnt sér nýju útgáfuna ítarlega og hvaða kosti hún hefur í för með sér umfram eldri útgáfur. Einnig hafa þeir nýtt reynslu sína varðandi umhverfi viðskiptavina sinna til þess að meta hvort og þá hvar SharePoint hentar þeim og hvernig best sé staðið að innleiðingu kerfisins og samþættingu við þau upplýsingakerfi og ferla sem fyrir eru. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
 • Hvað er Microsoft Office SharePoint Server 2007?
 • Til hvers er SharePoint 2007 - hver er markhópurinn?
 • Getum við notað SharePoint 2007 til að stjórna skjölum?
 • Getum við nýtt SharePoint 2007 sem hópvinnukerfi?
 • Er SharePoint 2007 lausn fyrir innrinet?
 • Getum við birt og notað gögn úr bakendakerfum s.s. Microsoft Dynamics NAV (Navision) og Microsoft Dynamics CRM?
 • Er komin lausn fyrir öll rafrænu formin sem við þurfum að vinna með?
 • Hvað kostar SharePoint 2007?

Fyrirlesarar verða frá Microsoft (Jesper Osgaard, IW Partner Technical Specialist) og TM Software.

Aðgangur er þér að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg.

Vinsamlegast sendu póst á info@tm-software.com eða hringdu í síma 545 3000 til að skrá þig.

Morgunkaffi verður í boði frá klukkan 8:30.
Við hlökkum til að sjá sem flesta.