27.04. 07

Hinn 25. apríl sl. héldu TM Software og Microsoft Íslandi námstefnu í höfuðstöðvum TM Software í Holtasmára 1 í Kópavogi þar sem kynntir voru kostir Microsoft Office SharePoint Server 2007. Þátttakan á námstefnunni var góð og voru gestir afar ánægðir með útkomuna en SharePoint-umhverfið getur sparað fyrirtækjum og stofnunum tíma og peninga þar sem hagræðingarmöguleikar í dreifðri vinnslu eru mjög miklir.

Allt á einum stað
Þátttakendum á námstefnunni var fyrst boðið til morgunverðar en Sigurður Þórarinsson, framkvæmdastjóri hjá TM Software, setti síðan námstefnuna. Jesper Osgaard, IW Partner Technical Specialist frá Microsoft, tók síðan til máls og kynnti Microsoft SharePoint og tæknina á bak við vöruna. Microsoft SharePoint Portal Server er hugbúnaður sem einfaldar samstarf verkefnahópa og gerir notendum kleift að deila á milli sín margskonar upplýsingum í veflægu Microsoft-umhverfi. Búið er til miðlægt svæði þar sem aðgangi að skjölum, forritum og gagnvirkum samskiptum samstarfshópa er útdeilt. Þannig eru samvinna hópa og ferlar gerð skilvirkari og einfaldari auk þess sem aðgangur að upplýsingum er á einum stað. SharePoint hefur sannað sig í umhverfi þar sem starfsmenn vinna á mörgum stöðum og eru sífellt á ferðinni. Sparnaður er ótvíræður og hægt er að ná fram mikilli hagræðingu á mjög skömmum tíma.

Gott í verkefnastjórnun
Sigvaldi Óskar Jónsson, ráðgjafi hjá TM Software, fór síðan ítarlega yfir hversu gagnlegt tól SharePoint er varðandi alla verkefnavinnu og skjalastjórnun og hvernig SharePoint auðveldar verkefnahópum og fyrirtækjum að koma böndum á skjöl og upplýsingar, skrá þau og flokka. Hann fjallaði einnig um hve algengt er orðið að fyrirtæki noti rafræn eyðublöð þegar safna þarf upplýsingum innan sem utan þeirra og sýndi hvernig hægt er að búa til eyðublað og birta á einfaldan og fljótlegan hátt með Microsoft Office InfoPath og SharePoint-lausnum.

Fjölmörg fyrirtæki nota Dynamics NAV-viðskiptahugbúnaðinn frá Microsoft en einn kostanna við innleiðingu Microsoft-lausna er að auðvelt er að tengja þær saman. Björn Þórhallsson, sölumaður hjá Maritech, sýndi hvernig hægt er að nálgast gögn úr altækum upplýsingakerfum (ERP) eins og Dynamics NAV og birta þau í SharePoint en það auðveldar stjórnendum og starfsfólki enn frekar að skoða og deila upplýsingum.

Halldór Másson, sölustjóri hjá TM Software, fór síðan yfir leyfismál SharePoint, hvað hafa ber í huga þegar SharePoint er innleitt hjá fyrirtækjum og stofnunum og hver sé hagkvæmasta leiðin við að leyfisvæða Sharepoint. Að lokum svöruðu fyrirlesararnir spurningum viðstaddra um innleiðingu SharePoint-lausnarinnar, notkun hennar og önnur tæknileg atriði.