13.07. 09
Ásgeir Bjarni Ingvarsson tekur við verðlaununum af Ágústi Einarssyni framkvæmdastjóra TM Software

Í vor stóð TM Software fyrir árlegri forritunarkeppni milli nemenda í háskólanámi þar sem í boði voru vegleg verðlaun. Þetta er þriðja árið í röð sem fyrirtækið stendur fyrir keppninni en 63 háskólanemar skráðu sig til leiks sem er metþátttaka.

Ásgeir Bjarni Ingvarsson hreppti 1. sætið og hlaut sumarvinnu hjá TM Software ásamt 100.000 króna úttekt í verslun Nýherja Borgartúni í verðlaun. Ásgeir er 1. ársnemi við Háskóla Íslands og einstaklega efnilegur forritari. Í öðru sæti var Jón Ingi Sveinbjörnsson sem hlaut 50.000 króna gjafabréf í verslun Nýherja í verðlaun. Ásgeir er nemandi við Háskóla Reykjavíkur. 

Keppnin fólst í því að nemendur skráðu sig til leiks og fengu þrautina senda til sín en lausninni bar að skila eftir rúmlega mánuð en mun styttri tíma tók þó að leysa þrautina. Þrautin fólst í að samþætta upplýsingakerfi og var reynt á færni og hugsun notenda við það. Eftir að lausninni var skilað þurftu þátttakendur að kynna sína lausn og verja hana.  

TM Software
TM Software býr yfir breiðri þekkingu á sviði veflausna, rafrænna viðskipta,  samþættingar og viðskiptagreindar, ásamt því að bjóða fjölbreytt úrval lausna og þjónustu sem gera fyrirtækjum kleift að auka sölu- og markaðssetningu, og hagræða í rekstri.