Nýr vefur ASÍ fór í loftið á verkalýðsdaginn, 1. maí sl. Vefurinn var settur upp í vefumsjónarforritinu ContentXXL en að auki var sérhannað viðmót fyrir hann til að greiða fyrir aðgangi sjóndapurra og lesblindra.
Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing launafólks í landinu. Um tveir þriðju hlutar launamanna í skipulögðum samtökum á Íslandi eru í ASÍ og því mikilvægt að allir hafi greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem hægt er að birta á vefnum. Farið var í gegnum ítarlega greiningu á þörfum notenda síðunnar og skoðað hvaða upplýsinga væri þörf.
Aðgengi í fyrirrúmi
Vefurinn var síðan settur upp í vefumsjónarkerfinu ContentXXL, sem er Microsoft-lausn frá ContentXXL International. Smíðað var sérhannað viðmót fyrir vef ASÍ, sem greiðir fyrir aðgangi sjóndapurra og lesblindra. Þannig er hægt að breyta litnum á letrinu, sérhljóðunum og bakgrunninum. Einnig er hægt að breyta leturgerðinni og leturstærðinni, auk þess sem hægt er að auka og minnka stafabil, orðabil og línubil textans á síðunni. ASÍ-vefsvæðið er fyrsti vefur TM Software sem nýtir sér þessa lausn en hana er hægt að yfirfæra á hvaða vefsvæði sem er óháð undirliggjandi veflausn.
Allar upplýsingar til staðar
Allar upplýsingar um ASÍ eru birtar á vefsíðunni og má þar telja fréttir, upplýsingar um vinnuréttindi og almennar upplýsingar um efnahags- og atvinnumál svo eitthvað sé nefnt. Einnig voru settir upp fræðslumolar um ýmislegt sem snýr að launamálum og vinnumarkaði. Nýr þriggja línu útdráttur úr hverjum mola birtist í hvert sinn sem forsíðan er opnuð og má síðan smella á hann til að fræðast betur um viðkomandi efni.
