06.06. 07

TM Software hefur gert samning við ÁTVR um uppsetningu og hönnun á nýrri vefsíðu á slóðinni www.vinbudin.is. Samningurinn var gerður eftir að TM Software fór í ítarlega greiningarvinnu á vefnum eins og hann er í dag.

Greiningarvinnan fól m.a. í sér greiningu á ferlum innan vefsins, þ.á m. kaupferli og því hvernig viðskiptavinir skoða upplýsingar. Tæknileg uppbygging og notendaaðgengi var haft að leiðarljósi svo og kröfur notenda, bæði starfsmanna ÁTVR og almennra notenda.
Ætlunin er að gera nýja síðu ÁTVR vörudrifnari, þ.e. leggja meiri áherslu á upplýsingar um vörurnar, tengingar við áhugaverðar fréttir, uppskriftir o.fl. Mun vefverslun síðan styðja við upplýsingarnar þannig að notendur hafi auðveldan aðgang að vörum ÁTVR.