TM Software setti nýlega upp nýtt og glæsilegt vefsvæði fyrir SPRON, www.spron.is, ásamt því að setja upp nýtt innra net fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Vefsvæðin eru keyrð í WebMaster 3.0 kerfinu sem er í stöðugri sókn og nýtur mikilla vinsælda meðal íslenskra fyrirtækja.
Besti þjónustuvefurinn
Við endurhönnun ytri vefs SPRON var sett það markmið að gera vefsvæðið að einum besta þjónustuvef landsins. Grunnáhersla var lögð á framúrskarandi notendaviðmót og aðgang fyrir alla. Markmiðið er að vefurinn sé þjónustu-, upplýsinga- og fjármálavefur fyrir einstaklinga, fyrirtæki, fjárfesta og stofnfjáreigendur. Því var skoðað ítarlega hvers konar aðgang þessir aðilar þurfa að hafa og hvaða efni þurfi að vera til staðar á vefnum. Lögð var áhersla á einfalda framsetningu efnis og gerð krafa um að ábyrgðarmenn efnis séu virkir og að upplýsingar um framboð þjónustu séu réttar og uppfærðar reglulega.
Það var hönnuður SPRON sem hannaði vefinn en honum til aðstoðar voru sérfræðingar TM Software í vefhönnun og uppsetningu. TM Software annaðist alla forritun og uppsetningu á vefsvæðinu. Nýi vefurinn er skrifaður frá grunni í .NET 2.0 þróunarumhverfinu frá Microsoft sem eykur hraða vefsins auk þess að hafa fengið aðgengisvottun sjónskertra og blindra. Einnig hefur verið mikið lagt upp úr sjálfvirkni og eru nú um 40 rafrænar umsóknir aðgengilegar á vefnum. Þetta leiðir til þess að viðskiptavinir fá skjótari afgreiðslu og geta nálgast allar upplýsingar á mjög auðveldan hátt. Auk þess geta notendur undirbúið sig vel með aðgang að ýmsum reiknivélum og samanburðartöflum á vefnum.
Góður aðgangur að upplýsingum
SPRON treystir mikið á innra net fyrirtækisins í allri upplýsinganotkun og byggist vinna þjónustufulltrúa SPRON og systurfyrirtækja þess að miklu leyti á vinnuflæði og upplýsingaöryggi WebMaster innra netsins. Því er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu til staðar og auðvelt sé að nálgast þær. Arnar Ægisson, forstöðumaður upplýsingatæknisviðs SPRON, hafði þetta um málið að segja: „TM Software hefur verið að byggja upp vefsvæði okkar með frábærum árangri. Það hafa orðið miklar framfarir í vefmálum okkar og getum við nú þjónustað viðskiptavini og ekki síður starfsmenn mun betur en áður. Sérfræðingar TM Software búa augljóslega yfir mikilli þekkingu og reynslu sem hefur aftur skilað okkur miklu“.
Fjölmörg önnur stórfyrirtæki nota WebMaster til að keyra ytri vefi sína sem og innri vefi og má þar nefna Sjóvá-Almennar, www.sjova.is, Landsvirkjun, www.landsvirkjun.is, Lánasýslu ríkisins, www.lanasysla.is, og Intrum á Íslandi, www.intrum.is.
