18.06. 07

TM Software er búið að opna nýja vefsíðu á ensku og er hún í sama útliti og síða sem var opnuð seint á síðasta ári á íslensku. Miðast er þar við að hafa allar upplýsingar um vörur, lausnir og þjónustu TM Software.

Slóðin að vefnum er: www.tm-software.com en markmiðið með nýja vefnum er að gera vörur, lausnir og þjónustu TM Software sýnilegri og upplýsingar um það aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Enska vefsíðan er nú í sama útliti og íslenska síðan og er stefnan tekin á að bæta síðar við fleiri tungumálum.
Nýi vefurinn er settur upp í vefumsjónarkerfinu VYRE Unify sem nýtist vel fyrir stór vefsvæði og býður upp á marga möguleika varðandi efnisumsjón.