25.06. 07

Þann 19. júní sl. hélt TM Software námsstefnu með IP Vista um Citrix hugbúnaðinn sem gerir fólki kleift að nálgast gögnin sín hvar sem er og hvenær sem er. IP Vista er umboðs- og dreifingaraðili Citrix á Norðurlöndunum og systurfélag Four Leaf Technologies.

Á námsstefnunni komu fram ráðgjafar TM Software sem eru vottaðir Citrix stjórnendur (e. Citrix certified Enterprice Administrator) sem og fulltrúar IP Vista í Danmörku. Eftir setningu námsstefnunnar fjallaði Søren Bay, vörusölustjóri hjá Citrix, um það hvernig Citrix hefur breyst í gegnum árin og hver stefna fyrirtækisins er varðandi sínar vörur. Hann fór ítarlega í það hvernig vörurnar tengjast og sýndi þá möguleika sem þær hafa.

Nýjar útgáfur
Margir þekkja fyrri útgáfur af Citrix eins og Metaframe 1.8 og Metaframe XP. En mikill munur er á nýjustu útgáfum bæði hvað varðar kerfisstjórn og dreifingu hugbúnaðar til notenda. Þorkell Guðjónsson, ráðgjafi hjá TM Software, lýsti því hversu frábær leið Citrix er til að ná ýmsum af þeim meginmarkmiðum sem menn hafa sett sér í upplýsingatæknigeiranum, t.d. miðjuvæðingu allra kerfa, einfaldari dreifingu hugbúnaðar til notenda, öruggan vefaðgang að öllum kerfum, minni bandbreiddarkröfur og auðveldari notendaaðstoð. Henrik Wipek frá IP Vista tók þá við og sýndi viðstöddum nýjustu útgáfu af Citrix, MPS4.5, sem er með innbyggðri beinni afspilun (e. streaming function) sem er sambærilegt og Softgrid frá Microsoft. Þetta gerir notendum kleift að nota hugbúnaðinn beint á útstöðvum og/eða í gegnum Citrix þjóna. Halldór Másson, sölu- og markaðsstjóri hjá TM Software, sýndi svo hvernig leyfismálum Citrix lausna er háttað og hvað fyrirtæki þurfa að hafa í huga hvað varðar það.

TM Software fékk einnig Elísabetu Halldórsdóttir, verkefnastjóra upplýsingatæknideildar Icelandair, til að segja frá reynslu félagsins á Citrix lausnunum. Icelandair hefur nýtt sér þær frá því um 1998 og eru enn að bæta við lausnirnar vegna þess hversu vel þær hafa nýst fyrirtækinu.