Nýverið opnaði nýtt vefvsvæði trygginga-félagsins Varðar www.vordur.is en starfsmenn TM Software unnu að uppsetningu vefsins og er honum stýrt í gegnum WebMaster vefumsjónartólið.
Ítarleg greining
Farið var í ítarlega greiningu á því hvaða upplýsingar þurfa að vera til staðar á vef-svæðinu og var m.a. vefgreiningartólið WebTrends nýtt til þess en það mælir hvernig vefsíðan er notuð. Fundin var síðan besta lausnin á því að gera vefsíðuna eins fullkomna og mögulegt er með notandann og hans þarfir að leiðarljósi.
Fjölmörg fyrirtæki nýta sér WebTrends tæknina en hún sýnir auðveldlega notendaferli á vefsvæðum og hjálpar við að veita upplýsingar um hvað sé hægt að gera betur.
Sterk heild með WebMaster
Nýja vefsvæðið er sett upp í vefumsjónarkerfinu WebMaster en mörg fjármála- og tryggingafélög landsins nýta sér það. Grunnkerfi WebMaster myndar sterka heild sem gerir notendum kleift að byggja upp og viðhalda veftré, texta, myndum, tenglum og fleiri upplýsingum á vefsvæðum auk þess sem það býður upp á öfluga leit í gagnagrunnum og fyrirspurnir.
Á vefsvæðinu www.vordur.is geta einstaklingar auðveldlega fundið allar þær upplýsingar er snúa að tryggingum félagsins. Markmið þessa nýja og endurbætta vefsvæðis er að gera viðskiptavinum kleift að afla sér upplýsinga, tilkynna tjón og senda inn fyrirspurnir þegar hverjum og einum hentar.
