Ein af skrifstofum Sameinuðu þjóðanna (OCHA) hefur tekið í notkun samskipta- og upplýsingagátt frá TM Software fyrir samræmt hjálparstarf á hjálpar- og hamfarasvæðum. Lausnin byggist á íslensku hugviti og hefur meðal annars verið nýtt af stjórnvöldum í Mexíkó fyrir hjálparstarf vegna inflúensufaraldurs (H1N1).
Lausnin, sem er notuð fyrir samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðaraðstoðarmálum (OCHA), er tvíþætt. Annars vegar er innri vefur fyrir miðlun og skjölun gagna og upplýsinga þeirra sem sinna mannúðar- og hjálparstarfi. Hins vegar er ytri vefurinn ætlaður almenningi sem getur aflað sér upplýsinga vegna hamfara eða neyðaraðstoðar á tilteknum svæðum. Þannig er hægt að hafa yfirsýn yfir hjálparstarf og neyðaraðstoð á einum stað. Lausnin er unnin í samvinnu við Microsoft sem vinnur náið með SÞ í uppsetningu á upplýsingatækni á neyðarsvæðum.
Upphaf verkefnisins má rekja til þess þegar TM Software og nokkur erlend upplýsingatæknifyrirtæki unnu upplýsinga- samskiptagátt fyrir Microsoft og SÞ í kjölfar fellibylsins Nargis sem skall á Myanmar árið 2008.
Í framhaldi var TM Software fengið til að hanna staðlaða lausn sem heitir OneResponse og bauð Microsoft hana heilbrigðisráðneyti Mexíkó þegar inflúensufaraldur braust þar út fyrr á þessu ári. Sú lausn er enn í notkun í Mexíkó. Í júlí síðastliðnum var svo samskiptagátt sem TM Software hannaði fyrir OCHA (http://oneresponse.info ), tekin í notkun. Þeirri lausn er ætlað að gegna mikilvægu hlutverki í hjálpar- og mannúðarstarfi SÞ í framtíðinni.
Gísli Ólafsson ráðgjafi hjá Microsoft segir að markmiðið með OneResponse sé að samræma hjálpar- og neyðaraðstoð SÞ og annarra hjálparsamtaka. „Þannig er hægt að koma fólki á neyðarsvæðum fyrr til aðstoðar, auka skilvirkni í hjálparstafi og tryggja öruggari og nákvæmari upplýsingamiðlun.“
Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software segir að verkefnið sé mikil viðurkenning fyrir íslenskt hugvit. „Tækifæri þekkingarfyrirtækis eins og TM Software liggur í vaxandi mæli erlendis. Félagið býr yfir breiðum hópi vel menntaðs starfsfólks og því vel í stakk búið til þess að sækja frekari verkefni utan landssteina.“
TM Software
TM Software býr yfir breiðri þekkingu á sviði veflausna, rafrænna viðskipta, samþættingar og viðskiptagreindar, ásamt því að bjóða fjölbreytt úrval lausna og þjónustu sem gera fyrirtækjum kleift að auka sölu- og markaðssetningu, og hagræða í rekstri.
