10.09. 09
Pressan.is er núna á meðal 10 vinsælustu vefa Íslands samkvæmt Samræmdum vefmælingum (teljari.is). Pressan.is hefur verið starfrækt í rúmt hálft ár og hóf nýverið að nota WebMaster, vefumsjónarkerfi, hannað af sérfræðingum TM Software, sem hefur leitt til stigvaxandi umferðar á vefsvæðið.

Pressan byggist á öflugum bakenda WebMaster vefumsjónarkerfisins sem heldur utan um fréttir, undirsíður, myndir, auglýsingar o.fl. Í gegnum kerfið geta notendur auðveldlega sett inn nýja frétt, bætt við myndum, breytt auglýsingum og stjórnað öðrum hlutum á vefnum. Sérfræðingar TM Software útfærðu einnig nýjar virknieiningar fyrir Pressan.is til að bæta upplýsingum á vefsvæðið og má þar m.a. nefna veður og færð á vegum.

Pressan notar vefgreiningu WebMaster kerfisins til að fylgjast með umferð á vefnum. Sérfræðingar TM Software nota þau vefgreiningargögn til að greina nákvæmlega notkunina á vefsíðunni til að koma auga á ný tækifæri og koma með tillögur að viðbótum og endurbótum.

Pressan notar einnig Herstjórann, póstlistaforrit TM Software, til að senda m.a. tilkynningar um nýja leiki sem Pressan stendur að. Póstlistamarkaðssetningin hefur reynst Pressunni mjög hagkvæm leið til ná til fjölda fólks á auðveldan máta og góð leið til að fá fólk til að heimsækja vefinn aftur.

„WebMaster kerfið hefur verið gífurlega hjálplegt við uppbyggingu og umsjón á Pressan.is. Fréttamenn okkar og pennar eru alveg sjálfstæðir og eiga auðvelt með að setja inn fréttir og myndir sjálfir. Það er mikill kostur hvað WebMaster kerfið er sveigjanlegt og auðvelt að þróa nýjar hugmyndir í sameiningu við TM Software. Herstjórinn hefur líka reynst mjög vel til að halda utan um okkar mörgu áskrifendur og ná til þeirra á einfaldan hátt“, segir Arnar Ægisson, framkvæmdastjóri Pressunnar.

Pressan lét setja upp öfluga leit svo auðvelt sé að finna réttar upplýsingar og fréttir í þeim gríðarlega stóra fréttagrunni sem er á vefsvæðinu. Leitin byggist á framúrskarandi leitarþekkingu Google og gerir notendum kleift að finna auðveldlega það sem leitað er að.

Pressan
Pressan er óháður vefmiðill sem stundar vandaða frétta- og upplýsingamiðlun. Pressan er óháð öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Pressan hóf göngu sína á Netinu 28. febrúar 2009.

TM Software
TM Software býr yfir breiðri þekkingu á sviði veflausna, rafrænna viðskipta, samþættingar og viðskiptagreindar, ásamt því að bjóða fjölbreytt úrval lausna og þjónustu sem gera fyrirtækjum kleift að auka sölu- og markaðssetningu, og hagræða í rekstri.