07.09. 07

Þann 29. ágúst sl. hélt Sprettur í samvinnu við TM Software ráðstefnu um Agile og Scrum stjórnunaraðferðir. Ráðstefnan var sérstaklega hönnuð fyrir stjórnendur og aðra sérfræðinga í hugbúnaðarþróun en Scrum stjórnunaraðferðir er aðferðafræði í verkefnastjórnun sem er m.a. notuð hjá Google, Microsoft, Yahoo! og Nokia.

Rúmlega 120 manns sóttu ráðstefnuna en erindi fluttu: Ásgrímur Skarphéðinsson, forstöðumaður Tölvu- og upplýsingasviðs Kaupþings, Ken Schwaber, höfundur Scrum, Petri Haapio, stjórnandi og þjálfari hjá Nokia, Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri Industria, Ole Jepsen, leiðtogaþjálfari hjá GoAgile og Timo Lukumaa, framkvæmdastjóri hjá Reaktor Innovations. Þeir kynntu Agile hugmyndafræðina og greindu frá reynslu sinni en Agile er hugmyndafræði þar sem hugbúnaðarþróun, vöruþróun, verkefnastjórnun og almenn stjórnun renna saman. Í Agile hugmyndafræðinni er gengið út frá því sjónarmiði að vinna í hugbúnaðarverkefnum sé vöruþróun en ekki framleiðsla. Þetta sjónarmið gjörbreytir rekstri, verklagi og hugmyndum fólks í hugbúnaðarverkefnum. Agile hreyfingin hefur aldrei verið stærri og sýnilegri eins og hún er í dag t.d er Agile aðferðafræði númer 18 á lista CNN/Money magazine yfir atriði sem skipta mestu máli í rekstri fyrirtækja í dag.

Áhersla á teymisvinnu 

Í tengslum við ráðstefnuna var haldið tveggja daga námskeið, Certified ScrumMaster, þar sem farið var yfir Scrum aðferðafræðina og verkefnastýringu. Ken Schwaber var þar fyrirlesari og þjálfari en hann hefur starfað við hugbúnaðarþróun í 30 ár, bæði sem forritari og stjórnandi en hann var einn af þeim 17 aðilum sem skilgreindu Agile hugmyndafræðina og er einn af höfundum Scrum. Meginmarkmiðin með námskeiðinu var að kenna þátttakendum Scrum stjórnunaraðferðir og hjálpa þeim að breyta hugarfari sínu samhliða því að taka upp Agile og Scrum. Í Scrum er lögð mikil áhersla á teymisvinnu og sjálfstæð vinnubrögð teyma í takt við mjög einfaldar reglur um vinnubrögð og fundi. „Scrum meistarinn“ hefur það hlutverk að sjá til þess að teymið fylgi reglunum án þess þó að hafa áhrif á teymið sem skipuleggur sig að öðru leyti sjálft. Scrum kallar á nánara samband milli hugbúnaðarteyma og viðskiptavinar. Viðskiptavinurinn á að leiða þróunina með það að markmiði að hámarka arðsemi í verkefnum.
Tólf starfsmenn TM Software tóku þátt í námsskeiðunni og hafa nú hlotið vottunina Certified ScrumMaster.

Meiri gæði á styttri tíma

Það liggja fyrir fjöldamörg dæmi um fyrirtæki sem hafa endurskipulagt starfsemi sína og þróun samkvæmt hugmyndafræði Scrum. Þau eru að framleiða betri hugbúnað með meiri gæðum og á styttri tíma en almennt gerist. Þá gildir einu hvort þau fyrirtæki hafa verið að vinna eftir ISO eða CMI verklagi. Scrum hefur hjálpað þessum fyrirtækjum að ná enn betri árangri með minni yfirstjórnun. Scrum reynir á að það sé til staðar mjög gott Agile verklag til að teymi geti skilað tilbúinni afurð á tilsettum tíma. Þetta ávinnst aðeins með reynslu og innri stuðningi.

Hjá TM Software starfar stór hópur Agile sérfræðinga jafnt í þróun sem ráðgjöf til viðskiptavina. Við hjálpum okkar viðskiptavinum að gera þeirra vöruþróun virðisaukandi.