08.10.
07
Peter Ditlev, SAP Nordic Channel Director SME og Ágúst Einarsson, forstjóri TM Software, handsala samninginn.
Til þess að mæta vaxandi efirspurn íslenskra fyrirtækja eftir háþróðuðum viðskiptakerfum hefur TM Software verið útnefnt samstarfsaðili SAP sem er fremsti framleiðandi í heimi á sviði viðskiptahugbúnaðarÍslensk fyrirtæki eru í örum vexti og verða samkeppnishæfari með degi hverjum. Þau hafa snúið sér að alþjóðlegum mörkuðum og starfa bæði hérlendis og erlendis. Þetta hefur skapað þörf fyrir nýjar viðskiptalausnir t. d. vegna samstæðureikningsskila, mismunandi gjaldmiðla og ýmissa annarra sérþarfa.
Aukin umsvif SAP við gerð viðskiptahugbúnaðar sem byggir á SAP All-in-One lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hafa skapað mikla viðskiptamöguleika á sviði samofinna viðskiptalausna. SAP hefur því styrkt markaðsstöðu sína á Íslandi með útnefningu TM Software sem annars af tveimur samstarfsaðilum SAP.
„Okkur var ljós þörfin á íslenskum samstarfsaðila til að þjóna markaðinum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og kynna þá framleiðslu sem SAP býður upp á fyrir þann markað. TM Software er vel þekkt fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og hefur hýst SAP lausnir um árabil. Fagkunnátta starfsmanna fyrirtækisins er í fremstu röð og skilningur þess á gæðakröfum og þörfum viðskipavina er frábær,” sagði Jens Bager, sölustjóri SAP í Danmörku.
Í stað þess að einblína aðallega á stærri fyrirtæki er SAP byrjað að huga að þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þetta skiptir afar miklu máli á Íslandi þar sem langflest íslensk fyrirtæki eru frekar lítil og því blasa við mikil tækifæri til að markaðssetja SAP lausnir á Íslandi.
„TM Software hefur hýst SAP kerfi um nokkurra ára skeið og við viljum auka þjónustu okkar við nýja jafnt sem gamla viðskiptavini. Þeim vaxandi hópi viðskipavina sem eru að huga að viðskiptum á alþjóðavettvangi viljum við bjóða upp á SAP ráðgjafaþjónustu. Við viljum vera í fararbroddi og vera í stakk búin að veita viðskiptavinum okkar alla þá aðstoð sem við getum,” segir Ágúst Einarsson, forstjóri TM Software.
Starfsmenn TM Software hafa víðtæka reynslu af SAP lausnum – bæði almenna tölvu- og hugbúnaðarþekkingu svo og reynslu af sérhæfðum lausnum sem fengist hefur með þjálfun og þátttöku í SAP verkefnum með viðskiptavinum.
„Sem rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki getum við boðið upp á gríðarmikla viðbótarvirkni við SAP lausnir ásamt þekkingu á samþættingu og rafrænum samskiptum. Við þjónum víðfeðmum markaði en leggjum samt sérstaka áherslu á aðstoð við veitufyrirtæki, flutningafyrirtæki, verslunar- og þjónustufyrirtæki,” segir Ágúst Einarsson.
Um SAP
SAP er fremsti framleiðandi í heimi á sviði viðskiptahugbúnaðar*. Meira en 41,200 viðskiptavinir í meira en 120 löndum nota SAP® lausnir – allt frá sérhæfðum lausnum fyrir smá og meðalstór fyrirtæki til heildarkerfa fyrir alþjóðleg fyrirtæki. SAP hugbúnaður, tengdur SAP NetWeaver® stýrikerfi sem ryður braut nýjungum og breyttum viðskiptaháttum, aðstoðar fyrirtæki af öllum stærðum vítt um heim við að bæta þjónustu við viðskiptavini, styrkja samvinnu við samstarfsaðila og auka hagkvæmni í aðfangakeðjum og viðskiptum. Safn SAP lausna styðja sérhæfð viðskiptaferli í meira en 25 framleiðslugreinum, m.a. í hátækni-, smásölu-, fjármálaþjónustu-, og heilsugæslugeirunum, og hjá hinu opinbera. Fyrirtækið á dótturfyrirtæki í meira en 50 löndum og er skráð í ýmsum kauphöllum undir merkinu "SAP, meðal annars kauphöllunum í Frankfurt og New York." (Frekari upplýsingar á http://www.sap.com.)
(*) SAP skilgreinir viðskiptahugbúnað sem samheiti yfir ERP (enterprise resource planning/auðlindaskipulagning fyrirtækja) og tengdar lausnir eins og t.d. stjórnun aðfangatengsla, stjórnun tengsla við viðskiptavini, stjórnun nýtingartíma vöru og stjórnun sambands við birgja.
