07.10. 09
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og Magnús Ingi Stefánsson, hópstjóri hjá TM Software.

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur tekið í notkun innri vef og hópvinnukerfi fyrir starfsfólk félagsins og um 18 þúsund félagsmenn þess. Lausnin eykur upplýsingaflæði og viðbragðsflýti milli félagsmanna sem og starfsfólks auk þess að einfalda allt samstarf og samvinnu þeirra á milli. Lausnin er unnin í SharePoint og CRM af hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software, dótturfélagi Nýherja. SharePoint og CRM var valið sem grunnur hópvinnukerfis Slysavarnafélagsins Landsbjargar vegna þjónustu og rekstraröryggis.

Hópvinnukerfið gerir félagsfólki kleift að halda utan flesta þætti félagsstarfsins, þar á meðal að viðhalda félagatali, halda utan um fundastörf allra nefnda félagins auk þess að færa félagsmönnum og starfsfólki vettvang til að miðla upplýsingum sín á milli með öruggum hætti.

Farið eftir bestu mögulegum upplýsingum
Viðbragðshraði og nákvæmni í útköllum er kjarni í starfsemi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og þar gegnir félagatalið lykilhlutverki. Útköllum og útkallshópum er stýrt með félagatalinu og með lausn TM Software geta félagsmenn uppfært upplýsingar sínar, sem tryggir að á ögurstundu er farið eftir bestu mögulegum upplýsingum um félagsmenn.

Markmiðið með verkefninu var að efla, viðhalda og auka aðgengi að upplýsingum og gögnum um félagsfólk og tryggja enn frekar öryggi í starfsemi félagsins,” segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

„Lausnin skiptir miklu máli fyrir 25 nefndir félagsins sem eru starfandi á landsvísu. Nefndarmenn koma frá stöðum víðs vegar um landið og því getur samhæfing þeirra verið flókin. Nú geta nefndir fengið sitt eigið svæði á netinu þar sem hægt er að halda utan um fundarstarf. Lausn TM Software hefur því eflt upplýsingaflæði og aukið um leið öryggi í starfsemi félagsins,” segir Kristinn.