08.10.
09
Lausn sem notuð var til þess að leysa vanda innanhúss hjá TM Software á sínum tíma er nú notuð til þess að leysa vandamál fyrirtækja úti í hinum stóra heimi. Um er að ræða viðbót við Jira verkbeiðna- og þjónustukerfið sem gerir notendum kleift að tengja við tímaskráningar og koma í veg fyrir tvískráningar beiðna og reikninga. Meðal notenda þessarar lausnar eru Apple, Sony í Evrópu og America Online.
„Markaðssetning á lausninni erlendis er hluti af viðbrögðum TM Software við áhrifum hremminganna hér eftir hrunið fyrir ári þegar innlend fyrirtæki drógu hratt saman seglin. Á vordögum sótti fyrirtækið á erlenda markaði af meiri krafti en áður. Það hefur skilað sér í því að þrjátíu prósent tekna TM Software koma nú erlendis frá,“ segir Pétur Ágústsson, hópstjóri hjá TM Sofware í samtali við Fréttablaðið þann 8.október sl.Frekari upplýsingar um Tempo vöru TM Sofware er að finna á http://www.tempoplugin.com

