08.10. 09
Við opnun vefsins

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra opnaði á dögunum nýjan og endurbættan vef Krabbameinsfélags Íslands, www.krabb.is. Vefurinn er hannaður í WebMaster vefumsjónarkerfi TM Software. Vefsvæðið er mikilvægt tæki fyrir þá sem leita upplýsinga um krabbamein og sem þurfa að nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins.

Vinna við nýju síðuna hefur staðið í tvö ár. Við undirbúning síðunnar var meðal annars leitað álits fólks sem greinst hefur með krabbamein, aðstandendur, aðildarfélög Krabbameinsfélagsins og fagfólks. Á síðunni er lögð áhersla á einfalda og þægilega framsetningu á fræðslu um krabbamein og upplýsingum um þjónustu Krabbameinsfélagsins. Meðal annars er hægt að panta tíma í krabbameinsleit og gerast styrktaraðili Krabbameinsfélagsins í gegnum síðuna.

„Ég bind miklar vonir við að ný heimasíða auki og bæti tengsl okkar við þá sem nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins og þá ekki síst yngri kynslóðina. Heimasíðan á að vera síungur og lifandi miðill sem tengir Krabbameinsfélag Íslands við íslensku þjóðina og það umhverfi sem við störfum í,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir formaður Krabbameinsfélags Íslands.