Frétta- og afþreyingarvefurinn Pressan.is hefur á skömmum tíma náð þeim árangri að verða eitt vinsælasta vefsvæði landsins. Pressan hóf nýlega að nota WebMaster, vefumsjónarkerfi TM Software, sem hefur leitt til stigvaxandi umferðar á vefsvæðinu.
WebMater vefumsjónarkerfi Pressunar heldur utan um fréttir, undirsíður, myndir, auglýsingar o.fl. Pressan notar einnig vefgreiningu WebMaster kerfisins til að fylgjast með umferð á vefnum. Slík lausn greinir nákvæma notkun á vefsvæðinu og gerir eigendum vefsvæðisins kleift að koma auga á ný tækifæri í þróun vefjarins.
Pressan hefur jafnframt látið setja upp öfluga leit svo auðvelt sé að finna upplýsingar og fréttir í fréttagrunni vefsvæðisins. Leitin byggist á framúrskarandi leitarþekkingu Google og gerir notendum kleift að finna auðveldlega það sem leitað er að.
Pressan notar einnig Herstjórann, póstlistaforrit TM Software, til að senda m.a. tilkynningar um nýja leiki sem Pressan stendur að. Póstlistamarkaðssetningin hefur reynst Pressunni mjög hagkvæm leið til ná til fjölda fólks á auðveldan máta og góð leið til að fá fólk til að heimsækja vefinn aftur.

