12.10.
07
Nýherji hf. hefur samið um kaup á 77% af hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf. af
Straumi hf., FL Group hf. og Tryggingamiðstöðinni hf. Straumur hf. annaðist milligöngu um kaupin og eru þau háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem og samþykki samkeppnisyfirvalda.
Með kaupum TM Software fylgja fimm félög TM Software: Skyggnir, Origo, Vigor, eMR og ITP. Markmið Nýherja með kaupunum er að styrkja stöðu samstæðunnar á sviði rekstrarþjónustu, hýsingar og þróunar sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software er í forystu hérlendis á sviði hýsingar og sértækra hugbúnaðarlausna og eru mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins á meðal viðskiptavina fyrirtækisins.
„Með þessum kaupum verður til stærsta hýsingar- og upplýsingatæknifyrirtæki landsins. Þessi kaup munu veita TM Software mikil tækifæri til að eflast enn frekar á heimamarkaði en skapa okkur einnig sóknarfæri á erlendum markaði með samstæðunni. Við höfum í gegnum árin unnið náið með Nýherja og vitum að samlegðin er mikil þannig að við munum geta aukið styrkleika samstæðunnar. TM Software mun verða rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki og stefnan helst óbreytt enda er vöxturinn mikill og afkoman góð,“ sagði Ágúst Einarsson, forstjóri TM Software, um kaupin
Kaup Nýherja á TM Software eru mikilvægur áfangi í því að styrkja stöðu Nýherjasamstæðunnar
sem lausna- og þjónustufyrirtækis og verður yfir helmingur tekna sameinaðs félags af
hugbúnaðar- og þjónustustarfsemi. Velta samstæðunnar eftir kaupin á TM Software verður um 13
milljarðar króna og starfsmannafjöldi um 750. „Með kaupum á TM Software býðst viðskiptavinum Nýherjasamstæðunnar fullkomin heildarþjónusta á sviði upplýsingatækni. Kaupin styrkja stöðu félagsins og til verður fremsta hýsingarfyrirtæki og öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins,“ segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, um kaupin.
Kaupin miðast við að heildarverð hlutabréfa í TM Software sé 1.700 m.kr. og er greiðsla á 77%
hlutafjár í TM Software því ríflega 1.300 m.kr. Nýherji ráðgerir að gefa út nýtt hlutafé að nafnverði
55 m.kr. til þess að fjármagna kaupin að hluta. Þetta hlutafé verður boðið til kaups á genginu 22 og eru því 1.210 milljónir króna fjármagnaðar með sölu hlutafjár. Greiðsla fyrir þau 77% sem keypt hafa verið er þannig að 32,35% eru greidd með hlutabréfum í Nýherja en 67,65% í peningum. Áformað er að verja allt að 25 milljónum króna af nafnverði hlutafjár til að greiða hluthöfum í TM Software en 30 milljónir króna verða boðnar núverandi hluthöfum í Nýherja. Eftirstöðvar kaupverðsins verða fjármagnaðar með lánsfé og úr sjóðum félagsins. Nýherji mun bjóða öðrum hluthöfum í TM Software að selja sinn hlut á sömu kjörum og þeir sem þegar hafa samið um sölu sinna hluta.
Nánari upplýsingar veita:
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 569 7711 / 354 og 893 3630 eða um netfangið thordur.sverrisson@nyherji.is.
Ágúst Einarsson, forstjóri TM Software, í síma +354 545 3000 eða um netfangið ae@t.is.