02.11. 09
Magnús Guðjónsson, hópstjóri CRM lausna hjá TM Software, fjallar um þjónustuleiðir hjá fyrirtækjum

TM Software hélt á dögunum fyrsta fundinn í morgunverðarfundaröð félagsins en hún er liður í að  kynna lausnir og þjónustu fyrirtækisins.

Fundurinn bar heitið Vönduð viðskiptastjórnun og hagkvæmari þjónustuferlar með Microsoft Dynamics CRM.  Hafrún H. Þorvaldsdóttir frá sölusviði Orkuveitu Reykjavíkur fjallaði um hvernig fyrirtækið hefur nýtt sér CRM kerfið í nokkur ár í viðskiptamannastjórn með góðum árangri sem hefur hjálpað fyrirtækinu eftir að samkeppni varð á raforkumarkaði. Hjörvar Jóhannesson frá Intrum sagði frá hvernig CRM kerfið tengist öðrum innri kerfum hjá fyrirtækinu og hvaða hagræðingu CRM kerfið hefur m.a. skapað í flóknu samningaferli. Magnús Guðjónsson, hópstjóri CRM lausna hjá TM Software, fjallaði um þjónustuleiðir hjá fyrirtækjum og tók dæmi um notkun á lausn frá TM Software sem byggir á Microsoft Dynamics CRM og m.a. stærsta símafyrirtæki norðurlandanna, TeliaSonera í Svíþjóð, hefur nýtt sér í samstarfi við TM Software.

Smelltu hér til að sjá glærurnar frá fundinum en Magnús Guðjónsson, mag@tmsoftware.is, getur aðstoðað ef þig vantar einhverjar frekari upplýsingar um lausnina. Einnig er hægt að finna myndir frá fundinum hér

Við viljum nota tækifærið og þakka þeim Hafrúnu og Hjörvari innilega fyrir að deila með okkur reynslu sinni.

Upplýsingar um næstu morgunverðarfundi má finna hér.