Þann 29. október síðastliðinn héldum við í TM Software annan fundinn í morgunverðarfundaröð okkar sem er liður í að kynna lausnir og þjónustu okkar.
Að þessu sinni fjallaði Pétur Ágústsson, hópstjóri, um Atlassian Jira sem er öflugt og sveigjanlegt verkbeiðna- og þjónustukerfi. Pétur kynnti einnig Tempo tímaskráningarkerfið sem er þróað af starfsmönnum TM Software sem viðbót ofan á Jira.
Arnheiður Árnadóttir, verkefnastjóri hugbúnaðardeildar og Ragnheiður Birna Björnsdóttir, deildarstjóri hugbúnaðardeildar Tryggingastofnunar ríkisins fóru síðan yfir reynslu sína á Tempo og Jira hugbúnaðinum sem TM Software hefur þjónustað stofnunina með.
Glærur fyrirlesara má nálgast hér og myndir frá ráðstefnunni má finna hér.
Vinsamlegast hafðu samband við Pétur Ágústsson, petur@tmsoftware.is, ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar um JIRA og Tempo.
Upplýsingar um næstu morgunverðarfundi má finna hér en næsti fundur er á fimmtudaginn, 5. nóvember, og fjallar um skjala- og málameðhöndlun með Microsoft SharePoint.
