07.11. 07

Fyrir skömmu framkvæmdi ráðgjafafyrirtækið Intellecta ehf. þjónustukönnun fyrir TM Software meðal viðskiptavina félagsins. Markmið könnunarinnar er að fá vísbendingar um hvernig TM Software þjónar viðskiptavinum sínum og hvernig félagið getur bætt þjónustu sína enn frekar og þar með mætt þörfum viðskiptavina betur.

Heimtur voru góðar og erum við afar þakklát viðskiptavinum okkar fyrir þátttökuna. Á næstunni verður unnið markvisst úr niðurstöðum könnunarinnar með þarfir viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Nöfn tveggja þátttakenda í þjónustukönnuninni voru dregin úr hópi svarenda og hlaut hvor 15.000 kr. gjafabréf á Argentínu steikhúsi ásamt kræsingum frá Jóa Fel og Bakaríinu við Brúna fyrir sig og vinnufélaga sína. Hinir heppnu þátttakendur voru Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns, og Friðný Björg Sigurðardóttir, þjónustustjóri Öldrunarheimilis Akureyrar.

Kristín Steingrímsdóttir, þjónustustjóri hjá TM Software veitir Önnu Birnu Jensdóttur, hjúkrunarforstjóri Sóltúns, verðlaunin

 

Aníta Júlíusdóttir, móttöku TM Software á Akureyri, afhendir Friðnýju Björg Sigurðardóttur, þjónustustjóra Öldrunarheimilis Akureyrar, verðlaunin.