Þann 12. Nóvember síðastliðinn hélt TM Software morgunverðarfundinn Heildarlausnir fyrir fyrirtæki; tölvupóst, dagatöl, skjalageymslu og hópvinnusvæði með Google Apps.
Fundarstjóri var Pétur Ágústsson, hópstjóri hjá TM Software, en hann og Soffía Kristín Þórðardóttir, ráðgjafi hjá TM Software, sýndu Google Apps. og hvernig nýta má hin ýmsu tól í því. Meðal annars var sýnt hvernig margir geta unnið á sama tíma í sama skjali í Google Docs þannig að allir viti hvað sé nýjasta útgáfan í stað þess að þurfa að tékka skjalið inn og út úr kerfi eða senda það á milli í tölvupósti. Nýverið tóku 40% starfsmanna TM Software upp Google Mail og sýndi Soffía m.a. hvernig unnt er að tengja það við hefðbundin kerfi eins og Outlook þegar verið er að bóka fundi. Finnur Pálmi Magnússon, ráðgjafi hjá leikjafyrirtækinu Sauma Technologies, sýndi hvernig hann og aðrir í fyrirtækinu hafa nýtt sér Google Apps. í viðskiptaumhverfi sínu.
Fyrirtæki geta lækkað kostnað hjá sér að meðaltali um 50%-75% (Heimild: Should Your Email Live in The Cloud?‘ Ted Schadler, Forrester, 2009) með því að nota Google apps. Jafnframt eru þau að fá fullkomið skjala- og samskiptakerfi sem krefst engrar uppsetningar á tölvu endanotenda og því mun minni rekstur sem fylgir því. Samkvæmt annarri áreiðanlegri heimild er Google gmail tíu sinnum áreiðanlegra en Microsoft Exchange og með engan skipulagðan niðurtíma (Corporate IT Survey – Messaging & Collaboration, 2008-2009,” The Radicati Group, 2008).
Fundurinn var þétt setinn og augljóst að sú hagræðing sem getur fylgt því að nota Google Apps. er ofarlega í huga stjórnenda íslenskra fyrirtækja.
Glærur fyrirlesara má nálgast hér og myndir frá ráðstefnunni hér.
Allar nánari upplýsingar varðandi Google Apps. lausnir og þjónustu veitir Pétur Ágústsson, petur@tmsoftware.is. En við hvetjum alla til að fá rágjöf hjá sérfræðingum TM Software sem geta sýnt hvernig unnt er að spara í rekstri fyrirtækja.
Við viljum nota tækifærið og þakka Finni Pálma innilega fyrir að deila reynslu sinni.
Upplýsingar um næstu morgunverðarfundi er að finna hér en þeir eru haldnir á fimmtudögum í vetur.

