01.02. 08

Starfsmenn TM Software óska Icelandair, Landsbjörgu og Sjóvá innilega til hamingju með tilnefningar þeirra til SVEF Vefverðlaunanna 2007. Sérfræðingar TM Software vinna að þróun þessara vefsvæða og eru þau öll sett upp í mismunandi vefumsjónarkerfum undir vörumerkinu Origo.

Í dag, 1.febrúar, verða Íslensku vefverðlaunin 2007 veitt í áttunda sinn og kemur þá í ljós hver ber sigur úr bítum. Tilkynnt verður um úrslit á ráðstefnu um vefmál en verðlaun eru veitt í ýmsum flokkum. Vefur Icelandair, www.icelandair.is, sem settur er upp í efnisumsýslu- og vefumsjónarkerfinu VYRE, keppir í hópnum: Besti sölu- og þjónustuvefurinn. Sjóvá vefurinn, www.sjova.is, keppir í flokknum: Besti fyrirtækjavefurinn. Sjóvá vefurinn er settur upp í vefumsjónarkerfinu Webmaster. Vefur slysavarnarfélagsins Landsbjörgu og Björgunarskólans, www.landsbjorg.is keppir loks um verðlaunin: Besti vefur í almannaþjónustu. Hann er settur upp í vefumsjónarkerfinu Webmaster.

Við óskum þessum viðskiptavinum okkar innilega til hamingju með tilnefningarnar og um leið óskum við þeim góðs gengis.