27.11. 09

TM Software hefur þróað lausn í samstarfi við vefhönnunarfyrirtækið VYRE Ltd. fyrir bresku ferðaskrifstofuna Inghams, sem er leiðandi í skíða- og fjallaferðum til Evrópu og Norður-Ameríku.

TM Software sá um að tengja bókunarkerfi Inghams við vef ferðaskrifstofunnar svo hægt sé að leita að ferðum og fá ávallt nýjustu verð og framboð þegar vafrað er um vefinn. Með tengingu vefjarins við bókunarkerfið er fullur aðskilnaður á milli efnis (myndir og texti) og bókunarupplýsinga (verð og framboð).  Þannig er hægt að breyta verði og framboði fyrir vefinn með einföldum hætti.  

Breska vefhönnunarfyrirtækið VYRE annaðist uppsetningu á vefumsjónarkerfinu VYRE Unify fyrir Inghams og fékk TM Software til að annast tengingar við bókunarkerfið. Markmið Inghams með nýjum vef er að auka hlut sinn í sölu á ferðum í gegnum netið og stuðla að aukinni hagræðingu, svo sem nýtingu á efni frá vefnum í gerð bæklinga. Inghams notar lausnina til að halda utan um allt stafrænt efni, varðveislu þess, samþykktarferli og birtingu í hinum ýmsu miðlum.