18.12.
09
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri, afhendir Guðrúnu Agnarsdóttir, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands styrkinn fyrir hönd TM Software, EMR og Skyggnir
Í ár hafa systurfyrirtækin TM Software, EMR og Skyggnir stutt við bakið á starfsemi Krabbameinsfélags Íslands og veitt félaginu veglega jólagjöf í formi fjárstyrks að andvirði þeirrar fjárhæðar sem hefur hingað til verið varið í jólagjafir og jólakort til viðskiptavina.
Stjórnendum fyrirtækjanna finnst afar mikilvægt að leggja starfi góðgerðarsamtaka eins og Krabbameinsfélaginu lið á tímum sem þessum þegar erfitt getur verið að falast eftir styrktarfé hjá atvinnulífinu og er þetta liður í því. Árlega greinast yfir 1100 Íslendinga með Krabbamein en Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir tilstuðlan velviljaðra einstaklinga og fyrirtækja.
TM Software, EMR og Skyggnir eru dótturfélög Nýherja og starfa öll á sviði upplýsingatækni.