04.01.
10
TM Software hefur tekið þátt í þróun samskiptagáttar fyrir félag sjúkraþjálfara í Danmörku, en lausnin nær til um 30 þúsund félagsmanna í Danmörku.
Um er að ræða innri vef sem er nokkurs konar samfélagsvefur sem hefur að geyma upplýsingar um félagsmenn, starfsemina, fróðleik og viðburði sem eru framundan hjá félaginu. Þar geta félagsmenn skráð sig á ýmis námskeið og faghópa sem tengjast starfseminni. Samskiptagáttin er unnin í IBM WebSphere Portal samþættingarlausnum.
Verkefnið var unnið á vegum IBM og danska hugbúnaðarfélagsins INOPI, sem fékk TM Software til að útfæra lausnina og annast uppsetningu á einstökum einingum.