12.01.
10
TM Software hefur þróað samskiptalausn í samvinnu við Microsoft fyrir Sameinuðu þjóðirnar til að samræma hjálparstarf og þróunaraðstoð víðs vegar um heiminn. Lausnin hefur meðal annars verið notuð í tengslum við hjálparstarf vegna útbreiðslu H1N1 veirunnar í Mexíkó.
Magnús Ingi, hópstjóri hjá TM Software, var í viðtali í bæði fréttum RÚV og mbl.is sjónvarpsins. Kemur þar m.a. fram að Microsoft hefði veitt TM Software sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt í Mexíkó þar sem lausnin var í notkun, en hún er nú í notkun hjá Sameinuðu þjóðunum meðal annars í Pakistan og Fillipseyjum.

