03.03. 08
Torfi Þór Gunnarsson heldur fyrirlestur á Microsoft ráðstefnunni
Á dögunum tók TM Software þátt í ráðstefnu Microsoft Heroes happen {here}. Ráðstefnan var haldin í Smárabíói í Kópavogi og var stærsta netþjóna- og þróunarumhverfiskynning í sögu Microsoft. Markmiðið var að kynna þrjár stærstu netþjóna afurðirnar á markaðnum í dag; Windows Server 2008, Visual Studio 2008 og SQL Server 2008.

 

Fjölmargar kynningar voru í boði á ráðstefnunni og héldu tveir sérfræðingar TM Software í hugbúnaðarþróun fyrirlestur. Torfi Þór Gunnarsson hélt fyrirlestur um Visual Studio 2008 og þær nýjungar sem kerfið hefur í för með sér í hugbúnaðarþróun. Atli Steinn Davíðsson hélt fyrirlestur um uppbyggingu gagnavinnslu með SQL Server 2008.

Um 400 manns tóku þátt í ráðstefnunni sem var sérstaklega ætluð fyrir tæknifólk, þróunaraðila, tæknistjóra og áhugafólk.