Sigvaldi Óskar Jónsson ráðgjafi hjá TM Software verður með fyrirlestur um skjalamál með SharePoint á ráðstefnu Microsoft: Best of TechEd & Convergence 2010.
TM Software verður einnig með bás á ráðstefnunni þar sem sérfræðingar kynnar lausnir og þjónustu TM Software í Microsoft. TM Software er gull samstarfsaðili Microsoft og vottaður sölu- og þjónustuaðili fyrir m.a. Microsoft SharePoint Server, BizTalk og viðskiptagreind auk veflausna byggðum á .NET og Silver Light. Sérfræðingar okkar hafa mikla reynslu í innleiðingu Microsoft lausna hjá viðskiptavinum, m.a. á sviði innri vefsvæða, skjala-, verkefna- og fjármálastjórnunar.
Því gefst þarna tilvalið tækifæri til að hlýða á einn sérfræðinga okkar og um leið skoða hvaða lausnir og þjónustu TM Software getur boðið þér.
Minnum á að fyrirlestur Sigvalda ráðgjafa TM Software um skjalamál með SharePoint verður þriðjudaginn 26. janúar kl. 14:30 (E014). Allar nánari dagskrárupplýsingar er að finna hér.

