OneResponse vefgáttinn sem TM Software hefur hannað er notuð við hjálparstarfið á Haítí.
Í viðtali Morgunblaðsins við Magnús Inga Stefánsson, hópstjóra hjá TM Software, kemur fram að TM Software hefur hannað upplýsingavefgáttina oneresponse.info fyrir Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) og er hún meðal annars notuð til að samræma hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna og fleiri aðila á eynni.
Magnús Ingi segir að Microsoft leggi mikið til mannúðarmála. TM Software hafi byrjað að vinna að ákveðnum lausnum með Microsoft í Myanmar 2008 og aðlagað þær fyrir heilbrigðisyfirvöld í Mexíkó vegna H1N1-flensunnar í fyrra. Lausnin hafi síðan verið notuð í löndum sem njóti þróunaraðstoðar SÞ og sé sérstaklega mikið notuð í Pakistan.
Að sögn Magnúsar Inga byggist lausnin á því að halda utan um öll samskipti við allar hjálparstofnanir í viðkomandi löndum. Vegna Haítí hafi verið sett upp síða þar sem allar hjálparstofnanir hafi verið skilgreindar. Allar upplýsingar séu því á sama stað og því sé mun auðveldara að taka markvissari, hraðari og betri ákvarðanir en áður.

