Dómnefnd Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) hefur birt tilnefningar til vefverðlauna SVEF 2009. TM Software hefur sett upp og þróað nokkra af vefjum tilnefndra fyrirtækja með starfsmönnum þeirra og má þar nefna www.sveit.is, www.icelandair.is, www.islandsbanki.is, www.pressan.is og http://m3.siminn.is/. Starfsmenn TM Software óska þeim innilega til hamingju með tilnefningarnar.
Fjölmargir vefir voru tilnefndir í hinum ýmsu flokkum. www.sveit.is var tilnefndur í flokknum Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn. www.icelandair.is og www.islandsbanki.is í flokknum Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn. www.pressan.is var tilnefnd í flokknum Besti afþreyingar- og fréttavefurinn. Farsímavefur Símans http://m3.siminn.is/ var tilnfendur í flokknum besti hand-smátækja vefurinn. Icelandair var svo einnig tilnefnt tvisvar í flokknum Besta markaðsherferðin og var það fyrir herferðirnar: Hvers vegna velur þú Icelandair og Haustleikinn.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Íslensku Vefverðlaunin verða afhent í níunda skipti þann 12. febrúar næstkomandi í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, af Iðnaðarráðherra, Katrínu Júlíusdóttir.
Allar nánari upplýsingar um Íslensku Vefverðlaunin 2009 og SVEF má finna hér.

