10.03. 08

TM Software hefur þróað innritunarkerfi fyrir Icelandair sem gerir farþegum kleift að bóka sig á netinu í öll flug frá landinu. Innritunarkerfið var formlega tekið í notkun 8.mars sl. og geta farþegar nú farið inn á www.icelandair.is og innritað sig í flug sitt u.þ.b. sólarhring fyrir flug.

Innritunin er mjög einföld. Farþeginn skráir inn eftirnafn sitt og bókunarnúmer og þá býðst honum að velja sér sæti í yfirlitsmynd af flugvélinni. Farþeginn prentar síðan út brottfararspjald með strikamerki. Allt ferlið tekur innan við eina mínútu og þegar komið er í Leifsstöð fer farþeginn í sjálfsafgreiðslustöð þar sem hann prentar út farangursmiðann og skilar farangri í þar til gerðu innritunarborði og fer svo beint í öryggisleitina og sýnir þar brottfararspjaldið.

„Netinnritunin er liður í að auka þægindi farþega og stytta biðtíma í Leifsstöð. Við sjáum mjög hraða þróun í þá átt að fólk kaupir rafræna farseðla á netinu og netinnritunin er eðlilegt framhald á því. Þessi þjónusta hefur verið í tæknilegum undirbúningi hjá okkur um tíma og við lögðum áhersla að á byrja þessa þjónustu hérna á Íslandi, þar sem flestir okkar farþega eiga leið um. Við munum svo bjóða upp á netinnritun frá áfangastöðum okkar erlendis einn af öðrum", segir Gunnar Már Sigurfinnson, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Icelandair í tilkynningu á vefsvæði Icelandair.

TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.